156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[16:58]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa þingsályktunartillögu og fyrir að leggja þetta mál hér fram. Ég tek vissulega undir það sem hefur komið fram hér í umræðunni, að þetta væri auðvitað sterkara mál ef það fylgdi hér einhver aðgerðaáætlun með þingsályktunartillögunni en tillagan er vissulega mjög góð.

Ég set spurningarmerki við þessa svæðisborg. Einhvern veginn truflar það mig örlítið. Mér finnst einhvern veginn fallegra að tala einfaldlega um Akureyri sem höfuðstað Norðurlands í staðinn fyrir svæðisborg. Þetta er eitthvað sem truflar mig. Mér finnst það vera virðulegra að vera höfuðstaður okkar Norðlendinga sem hefur upp á flestöll gæði að bjóða sem nútímamaðurinn vill nýta sér og er laus við ýmsa ókosti sem eru mögulega í höfuðborginni. Vil ég þá nefna hér umferðarhnúta og maður er fljótari að gera hlutina á Akureyri heldur en í borginni. Höfuðstaður — mér þætti vænt um að málið tæki þeim breytingum í staðinn fyrir svæðisborg. Kannski er þetta eitthvað sem þarf að venjast.

Ég ætla aðeins að staldra við þessar lykilaðgerðir sem koma þarna fram. A, b, c, d og e eru allar ágætar; að standast í alþjóðlegri samkeppni, efla atvinnulíf, innviði og heilbrigðismál, mennta- og menningarmál. Ég myndi gjarnan vilja bæta einum lið við. Það væri að það væri einfaldlega sett að einhverju marki inn að Akureyri tæki að sér ákveðið forystuhlutverk, sem er vissulega verið að sinna núna, svona forystuhlutverk fyrir okkur sem búum á landsbyggðinni, þannig að Akureyri sem þetta stóra og öfluga bæjarfélag norður í landi verði sverð og skjöldur dreifbýlisins því að auðvitað vitum við að um leið og minni staðirnir visna þá hefur það vissulega áhrif á stóru Akureyri. Ég tel að að það myndi skipta verulegu máli ef við myndum bæta þarna við f-lið.

Það sem ég vil draga út úr eru mennta- og menningarmálin. Mér finnst þau skipta verulega miklu máli. Þau tengjast vissulega atvinnulífinu og það er nú eitt af því sem hefur sannast einmitt með stofnun Háskólans á Akureyri 1987, það hafði verulega jákvæð áhrif, ekki bara á Akureyri heldur á menntunarstigið vítt og breitt á landinu, ekki hvað síst á landsbyggðinni. Það eru örugglega hærri hlutföll kennara, hjúkrunarfræðinga og fleiri sem koma einmitt þaðan og starfa á landsbyggðinni heldur en á öðrum stöðum. Það tel ég vera eitt af því sem, ef það á að vinna þetta nánar, á að draga út og standa vörð um. Það er bráðum 40 ára afmæli hjá háskólanum og þá væri einmitt gott að nota það tækifæri og þessa borgarstefnu — eða höfuðstaðarstefnu — til að lyfta vel undir háskólann sem sinnir viðfangsefnum sem eru örugglega að einhverju leyti öðruvísi, og val þeirra, heldur en ef þau væru unnin á Melunum hér í vesturhluta Reykjavíkur.

Það væri fínt að leggja áherslu á Háskólann á Akureyri í framhaldi af þessari vinnu og ekki síður heilbrigðismálin, að efla Sjúkrahúsið á Akureyri og draga einmitt þessa þætti út því það skiptir auðvitað verulega miklu máli fyrir fólkið sem býr í nágrannabyggðarlögunum að hafa góða þjónustu ekki langt undan.

Svo auðvitað má nefna það sem hæstv. ráðherra nefndi hér, auðvitað eru samgöngumálin aðalatriðið, þannig útstöðvarnar fyrir Norðlendinga og Austfirðinga — að það sé greið leið inn í góða þjónustu inn á Akureyri.

Eins og ég segi, borgarstefnan þarf að þýða eitthvað. Hún má ekki þýða allt og ekkert. Það væri bara virkilega jákvætt ef við gætum notað samþykkt þessarar stefnu til að lyfta upp Háskólanum á Akureyri í tilefni 40 ára afmælisins og það fellur þá við samþykkt þessarar borgarstefnu og það væri hið besta mál.