156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[17:45]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka þessar fínu umræður sem hér hafa átt sér stað. Varðandi það sem hefur verið rætt hér, að það skorti á að ég komi með aðgerðaáætlanir í formi þingsályktunartillögu, þá þarf fyrst að horfa á það að við erum að tala um að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna, þ.e. ríkisins og sveitarfélaganna. Ég tel ekki hægt, þó svo að það hafi verið mikið samráð hér áður við gerð þessa skjals, að fara fram með aðgerðaáætlun nú í byrjun sem er ekki byggð á formlegum samstarfsvettvangi með sveitarfélögunum. Sveitarfélögin ráða sínum málum eins og lög kveða á um. Það er ekki hægt fyrir miðstjórnarvaldið að koma með aðgerðaáætlun án þess að það sé formlegt samstarf og samráð, eðli sveitarfélaga er bara þannig. Ég tel að þetta sé rétt aðferðafræði að koma á þessum formlega samstarfsvettvangi. Þar eru skilgreindar aðgerðir sem verða settar fram og þróaðar í borgarstefnu.

Það má vel vera og það getur vel komið til álita að ég komi svo með annað plagg hér síðar á kjörtímabilinu um aðgerðaáætlun til að framfylgja borgarstefnunni. Það væri raunverulega lógískt að gera það að mörgu leyti ef það kæmi í ljós á samstarfsvettvangnum að það yrði betra fyrir markmið og framtíðarsýn borgarstefnunnar, svo það liggi algerlega klárt fyrir.

Varðandi aðra aðferðafræði sem lýtur að þessu plaggi, borgarstefnu, þá er það þannig í fyrsta lagi, eins og kemur fram í greinargerðinni, að við erum ekki að finna upp hjólið hérna. Það kemur fram á bls. 13, kafla 4.4, um alþjóðlegan samanburð, með leyfi forseta:

„Við mótun borgarstefnu hefur verið litið til Norðurlandanna og annarra Evrópuríkja sem hafa mótað sér borgarstefnu eða sambærilegar stefnur á vettvangi ríkisins um sjálfbæra þróun borga og borgarsvæða.“

Svo er í kaflanum talað um það að á öllum Norðurlöndum er stefna um uppbyggingu sveitarfélaga sett fram. Það er farið yfir það hvernig þetta er gert í Noregi, Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð. Svo er talað um önnur ríki í Evrópu, t.d. Írland og Norður-Írland sem eru sambærileg Íslandi hvað varðar yfirburðastöðu höfuðborgarsvæðisins. Þar er t.d. Dublin hlutfallslega gríðarlega stór miðað við aðra landshluta á Írlandi. Við erum mjög óvenjulegt ríki hvað þetta varðar. Þessa þróun, sem leiddi til þess að 80% íbúa landsins búa á Hvítár-Hvítár svæðinu, mætti rannsaka í sögulegu samhengi. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Við verðum að fara að taka upp virka byggðastefnu þannig að við getum búið í öllu þessu landi, alls staðar á landinu og þá koma samgöngur og annað til greina til að jafna búsetuskilyrði. Það er hins vegar efni í aðra umræðu.

Ég get tekið dæmi af Írlandi, það búa 40% íbúa þjóðarinnar í Dublin. Við erum með mun hærra hlutfall. Það er líka minnst á Pólland og Bretland og Frakkland í greinargerðinni. Síðast en ekki síst erum við að vinna eftir viðmiðum OECD, Efnahags- og framfarastofnuninni, sem er eins konar klúbbur ríkra þjóða í heiminum, stórlega vanmetin stofnun og mjög merkileg stofnun. Við erum að horfa á þau viðmið sem farið er yfir t.d. í 4. kafla, um mótun borgarstefnu. Það eru viðmið sem samráðsvettvangurinn mun fjalla um. Í 8. lið er t.d. talað um, sem er undirviðmið, fjármögnun aðgerða. Hér er fjallað um hugtakið borgarstefnu í víðu samhengi, hvernig OECD skilgreinir borgarstefnu sem samræmdar stefnumótandi ákvarðanir sem skipuleggja, fjármagna, þróa og viðhalda borgum af öllum stærðum og gerðum o.s.frv. Þar er viðmiðum skipt í þrjá flokka, umfang, stefnumörkun og hagaðila. Svo undir umfangið falla síðan ellefu viðmið og þar er m.a. talað um að tryggja fullnægjandi fjármögnun aðgerða á öllum stjórnsýslustigum. Það er gríðarlega mikilvægt, svo ég svari þeirri spurningu sem kom hér í umræðunni varðandi fjármögnun. Það verður að sjálfsögðu að horfa til þess.

Varðandi það sem kom fram hjá ræðumönnum, t.d. hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, þá er vissulega nafnið svæðisborg um Akureyri svolítið sérstakt. Þetta er 20.000 manna sveitarfélag. Þetta kom líka fram í ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar. Þetta er svolítið róttækt orð, eins og kom fram í máli hans, en það má venjast því. Ég tel sjálfsagt að nota þetta hugtak svæðisborg vegna þess að utan höfuðborgarsvæðisins er þetta stærsti þéttbýliskjarninn og okkur ber skylda til að efla hann, alveg klárlega. Það kemur fram, eins og hefur komið fram í umræðunum, að Háskólinn á Akureyri hefur verið gríðarlega mikilvæg byggðaaðgerð og við verðum að standa vörð um Háskólann á Akureyri. Ef við ætlum að taka þátt í upplýsingabyltingunni, sem ég efast stundum um að við séum að gera miðað við þann fjölda stúdenta sem við erum að mennta í upplýsingatækni og STEM-greinum, þá verðum við að gera átak á háskólastiginu og þá vonandi líka hjá Háskólanum á Akureyri. Vissulega er það fallegt hugtak, höfuðstaður, og Akureyri er höfuðstaðar Norðurlands og við erum með fleiri höfuðstaði eins og Ísafjörð, Egilsstaði o.s.frv. Þetta varð niðurstaðan. Og að sjálfsögðu eigum við að lyfta Háskólanum á Akureyri sem er þáttur í því að byggja upp Akureyri sem svæðisborg. Þetta eru allt atriði sem er hægt að taka upp á samráðsvettvangnum og hann getur tekið upp þau atriði sem eru nefnd hér sem lykilviðfangsefni og fleiri viðfangsefni.

Eitt atriði langar mig að leggja sérstaklega áherslu á, það er alþjóðleg samkeppnishæfni. Það er alveg kristaltært í mínum huga, ég þekki það á eigin skinni, að ef við getum ekki verið með alþjóðlega samkeppnishæft atvinnulíf og lífskjör hérna þá mun fólk fara annað. Það er alveg deginum ljósara. Ég hef haldið því fram að Íslendingar hafi verið að flytja út fólk síðan síldin hvarf 1969. Þetta verðum við að stoppa. Heimurinn er orðinn minni. Við erum í samkeppni um hæft fólk á öllum sviðum, í heilbrigðisþjónustu og víðar og við þurfum líka að geta boðið hæfileikafólki til landsins sem getur stuðlað að uppbyggingu landsins eins og í fjórðu stoðinni, tæknigreinum. Þetta er gríðarlega mikilvægt.

Ég hef t.d. verið að skoða þetta varðandi flugið. Flugfélag eins og Air Atlanta, þeir eru að flytja flugvélar til Möltu, Play er að fara til Möltu að hluta til o.s.frv. Við verðum að geta haft þessi fyrirtæki á Íslandi, frá A til Ö, við verðum að gera það. Land eins og Noregur, þeir eru með „shipping“ sem er gríðarlega stór iðnaður og búinn að vera síðan 1840, 1850. Þetta er allt starfsemi sem er erlendis, á alþjóðavettvangi. Cargo-vélar, flugfélag eins og Air Atlanta sem er í vöruflutningum, það er í raun „shipping“, bara í lofti. Við verðum að stuðla að því að við getum keppt á alþjóðlegum vettvangi. Við erum ekki einu sinni með alþjóðlega skipaskrá sem er algerlega með ólíkindum, að mínu mati.

Um það hvenær vinnu samstarfsvettvangsins lýkur þá er ég ekki búinn að taka afstöðu til þess en mun væntanlega taka afstöðu til þess þegar ég mun koma á þessum formlega samstarfsvettvangi og vonandi að það verði sem fyrst. En það er mikilvægt að hafa í huga eðli samráðsins og það gæti verið að samstarfsvettvangurinn myndi skilgreina það sjálfur.

Varðandi það að hefja umræður þá myndi ég hefja umræðu við Reykjavík og Akureyri og koma svo með tillögur til Alþingis. Þá vísa ég til þess sem ég sagði hér áður. Þetta er atriði sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir benti á. En ég get alveg sagt það að ég var í umræðum við fyrrverandi borgarstjóra um Reykjavíkurflugvöll og skyldu Reykjavíkur sem höfuðborgar til að hafa Reykjavíkurflugvöll. Hann fór nú frá, sá ágæti maður, sem borgarstjóri og að það hafi ekki verið að saga niður trén í Öskjuhlíðinni í síðustu viku finnst mér alls ekki nógu gott. Ég vona að þau verði söguð niður sem allra fyrst svo vestur/austur brautin verði opnuð. Það er skylda höfuðborgar að tryggja samgöngur við landsbyggðina.

Varðandi jöfnunarsjóðinn þá er það frumvarp ekki komið fram og ég tel rétt að taka þá umræðu á þeim vettvangi þegar ég mæli fyrir því ágæta frumvarpi.

Það að þetta mál sé ekki fullþroskað, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði, tel ég alls ekki rétt. Það hefur verið haft gríðarlega mikið samráð í þessu máli, það er hér talið upp í málinu, langur listi og þetta hefur verið óvenjumikið samráð. Þetta er raunverulega samstarfsverkefni milli ríkis og sveitarfélaga. Þess vegna á að stofna samstarfsvettvang í staðinn fyrir að koma strax með aðgerðaáætlun. Þannig að ég hafna því að þetta sé ekki fullþroskað mál. Ég held að við séum í ákveðinni vegferð hérna og það gæti komið til þess að ég leggi fram tillögu um aðgerðaáætlanir, vel skilgreindar aðgerðir sem samstarfsvettvangurinn mun þá koma með.

Hv. þm. Dagur B. Eggertsson talaði um tímamót, að Alþingi sé að leggja til mikilvægi borga á Íslandi. Það er vissulega rétt. Við höfum ekki horft á höfuðborgarsvæðið sem — jú, það er vissulega hluti af byggðaáætlun núna en við verðum að horfa á það að við erum í alþjóðlegri samkeppni gagnvart öðrum ríkjum um lífsgæði og lífskjör og þá skiptir verðmætasköpun öllu máli og framleiðni. Það er gríðarlega mikilvægt að við þróum landið sem eina heild og Reykjavík, það sé horft á það sem eina heild. Það eru hátt í 90% íbúa landsins sem búa á þessum tveimur svæðum, Hvítár-Hvítár svæðinu 80% og 8% annars staðar. Það tengist líka, ef þau svæði eru sterk þá styrkir það líka önnur svæði í landinu.