156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[17:59]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Mér finnst, fyrirgefðu, virðulegur forseti, þetta samtal bara skýra það betur og betur að sjálf þingsályktunartillagan er ekkert ofboðslega skýr, því að hér eru lykilviðfangsefni um atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun en svo stendur ekkert meira um það nema bara í greinargerðinni. Og aftur: Þetta er auðvitað lykilatriði, hvað á að vera þarna, og þetta munu þingmenn ekki geta fjallað um öðruvísi en bara lesa yfir greinargerð. Jú, jú, það er hægt að skrifa eitthvað út í nefndaráliti en þarna er ég hrædd um að það verði bara falskar væntingar hjá fólki. Auðvitað á þingið þá að taka það til umræðu: Bíddu, hver eru þessi lykilviðfangsefni varðandi atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun? Nú eða eins og hæstv. ráðherra kom inn á, innviðina og umhverfi, þá ættu auðvitað að vera þarna þessir punktar að það séu einhverjir lykilsamgönguinnviðir eins og flugvöllur eða samgöngumiðstöðvar eða hvað það er.

Þannig að aftur, virðulegur forseti, þriðja markmiðið, sem er svo kannski það sem er mikilvægast að koma á laggirnar núna, til að vinna áfram með örugglega margar mjög góðar hugmyndir, er þessi samstarfsvettvangur, formlegur samstarfsvettvangur. Og ég segi bara: Ekkert mál, þingið getur vel samþykkt það. Ekki að það þurfi endilega, ég held við séum með samráðsvettvang til að mynda um aukna hagsæld sem var settur á laggirnar hjá forsætisráðherra án þess að það þyrfti einhvern veginn þinglega meðferð. En ekki skal ég kvarta yfir því að framkvæmdarvaldið komi hér inn með eitthvað slíkt til okkar. Það færi bara vel á því og þá yrði bara skilgreint hvað þessi samstarfsvettvangur ætti að gera og í kjölfarið kæmu þeir með eitthvað.

Ég ætla bara að benda, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, hæstv. ráðherra á að upphafslínan segir: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu — en það er ekki alveg ljóst hver borgarstefnan er.