156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[18:01]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Fyrir það fyrsta þá er hér um að ræða aðgerð C.4 í byggðaáætlun sem Alþingi samþykkti þar sem kveðið er á um að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Við erum að taka hér eina aðgerð út úr byggðaáætlun og leggja fram skjal sem er þingsályktunartillaga um borgarstefnu, þannig að þetta er hluti af miklu stærri heild. Við vinnum þetta eftir viðmiðum OECD og svipað og önnur ríki hafa gert þannig að við erum ekki að fara að finna upp hjólið. Það er mjög mikilvægt að Íslendingar fari ekki að finna upp hjólið á þeim sviðum þar sem búið er að finna það upp. Það væri eins og hjólbörubyltingin hérna um 1870 þegar það var búið að finna upp hjólið löngu fyrir þann tíma. Við þurfum ekki að fara að finna upp hjólið ef það er búið að finna hjólið upp annars staðar, hvorki í þessum málum né öðrum.

Annað sem er mjög mikilvægt atriði er það, eins og segir í 2. málslið þessa plaggs, tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu, með leyfi forseta:

„Borgarstefna verði hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum.“

Þetta verður hugsað sem hluti af byggðaáætlun, þetta verður hugsað sem hluti af sameiningu stefna í byggðamálum. Hvar erum við að tala um þar? Jú, samgönguáætlun, sáttmála höfuðborgarsvæðisins í samgöngumálum. Þetta verður hluti af því. Það verður horft á þetta heildstætt, að tengja þessar stefnur saman og líka í byggðamálum almennt. Það er líka fjallað um þetta nánar í greinargerðinni. Þar er talað um byggðastefnuna, sem er þá frá 2024, samgönguáætlun, þar sem segir t.d., með leyfi forseta:

„Í samræmi við markmið og áherslur í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 (315. mál á 154. lögþ.) verða almenningssamgöngur áfram mikilvægur þáttur í að styrkja og stækka atvinnu-, þjónustu- og skólasóknarsvæði og auka aðgengi og jafnræði íbúa um land allt.“

Ég mun leggja fram nýja samgönguáætlun í haust, (Forseti hringir.) endurskoðaða, og það er líka verið að vinna að almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi í samvinnu við Vegagerðina. Þetta verður allt tengt (Forseti hringir.) þessari blessuðu borgarstefnu hvað varðar Akureyri og Reykjavík.