156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[18:09]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég hlakka til að takast á við þetta mál í nefndinni og ég hef trú á því að það verði líflegar og góðar umræður þar. Ég velti því fyrir mér, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, varðandi jöfnunarsjóðinn: Sér ráðherra fyrir sér í rauninni að skyldur höfuðborgarinnar og/eða þá höfuðborgarinnar og höfuðstaðar Norðurlands, kröfur sem gerðar eru til þeirra — að þess muni sjást stað í fjárveitingum til sveitarfélaganna til að mæta þessum viðbótarkröfum eða er ekki gert ráð fyrir að þetta krefjist einhverra fjármuna?