borgarstefna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Svo ég svari hv. þingmanni varðandi það að Sjúkrahúsið á Akureyri sé skilgreint sem varasjúkrahús fyrir allt landið þá er þessi skilgreining í lögum um heilbrigðisþjónustu og ég fer ekki að deila um það, ef það á að breyta því þarf að breyta lögunum. Ég vísa þá bara til forsendna sem eru væntanlega í greinargerð hvað það varðar.
Varðandi jöfnunarsjóðinn þá er þetta félagslegur jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Sögu þessa sjóðs má eiginlega rekja til ársins 1932 varðandi fátæktarhjálp og svo fékk hann eiginlega nútímahlutverk sitt árið 1992 þegar grunnskólarnir fóru til sveitarfélaganna. Jöfnunarsjóðurinner til að tryggja að sveitarfélögin geti sinnt þjónustuhlutverki sínu sem er skilgreint í lögum. Þetta er vegna þess að við erum með eitt risastórt sveitarfélag sem er 130.000 manns og svo alveg niður í 50 íbúa í hinu dreifbýla landi okkar. Þar eru skilgreindar ákveðnar kröfur eins og fjarlægðir og þjónustuhlutverk, hversu mörg börn eru o.s.frv., sem er þá grundvöllur útgjalda úr sjóðnum.
Vissulega er mikilvægt að skoða varðandi safnsveitarfélögin og önnur atriði en þá er þetta allt inni í, það er tekið tillit til þjónustuhlutverks sveitarfélaga og þeirrar þjónustu sem þau veita. Það er grundvallaratriðið. Ég mun mæla fyrir þessu frumvarpi seinna í vor og vænti þá góðrar umræðu um það mikilvæga frumvarp. Það er gríðarlega mikilvægt vegna þess að við erum að einfalda sjóðinn og þetta verður í sérlögum og ég tel mjög mikilvægt að þau lög nái fram að ganga og treysti því að svo verði.