156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[18:13]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sýslumenn. Með frumvarpinu er lagt til að embættum sýslumanna verði fækkað úr níu í eitt. Þetta frumvarp var unnið í dómsmálaráðuneytinu þegar ég var þar og fór þar í gegnum undirbúningsferli, m.a. í samráðsgátt stjórnvalda og á því voru gerðar ákveðnar breytingar, eins og ég kem síðar að, en málið fékk ekki afgreiðslu í ríkisstjórn vegna andstöðu eins stjórnarflokkanna og því legg ég það fram hér aftur nú.

Það verður unnið að því að landið verði að einu umdæmi með svæðisbundinni skiptingu þar sem unnt er að byggja upp miðlæga og sérhæfða framkvæmd verkefna á landsvísu ásamt því að þjónusta heimabyggð. Sameining embætta kallar á ný lög í stað laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins, enda byggja gildandi lög, nr. 50/2014, á því að um sé að ræða níu aðskilin embætti, hvert með staðbundnar valdheimildir sem fara aðallega með framkvæmd sömu kjarnaverkefna innan síns umdæmis, auk þess að fara með framkvæmd sérverkefna á landsvísu.

Með því að sameina níu sýslumannsembætti í eitt er gert ráð fyrir fjárhagslegri hagræðingu sem unnt verður að verja í frekari uppbyggingu og framþróun sameinaðs embættis ásamt því að fjármagna eftir atvikum ný verkefni. Þannig er ekki gert ráð fyrir að hagræðingin leiði til fækkunar starfa, þótt fyrirséð sé að störfin kunni að breytast með tímanum vegna nýrra verkefna og framþróunar í málaflokknum. Ekki er miðað við að breytingin hafi mikil áhrif fyrir sameiningu embætta 1. janúar 2026 og því verða störf annarra en sýslumanna færð yfir til nýs embættis að mestu leyti óbreytt. Þó er miðað við að einstaka starfsmenn kunni að þurfa að hlíta breytingum á starfi vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga í tengslum við stofnun nýs embættis og með hliðsjón af nýju skipuriti. Starfsfólkið heldur réttindum sínum við flutninginn en það fellur síðan í hlut nýs sýslumanns að skipuleggja nýtt embætti eftir því sem aðstæður og þarfir breytast. Þá er að auki miðað við að fjöldi starfsstöðva og skipting stöðugilda niður á starfsstöðvar haldist að mestu leyti óbreytt við sameiningu en að leitað verði tækifæra fyrir breytta verkaskiptingu og aukið samstarf við sveitarfélögin þar sem tækifæri eru til að bæta þjónustuna við íbúa svæðanna. Fyrir liggur að húsnæði sýslumanna er víðs vegar illa nýtt út um land og er því gert ráð fyrir að samhliða endurskipulagningu verkefna verði unnið að því að nýta húsnæðið betur til að hagræða í rekstri samhliða því að efla vinnustaðinn og bjóða upp á aukið framboð opinberrar þjónustu undir sama þaki.

Framangreind verkefni samræmast aðgerð A.8, Stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði, sem birtist í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Markmið aðgerðarinnar er að efla opinbera þjónustu í héraði, fjölga atvinnutækifærum og bæta ríkisrekstur.

Þær breytingar sem hér eru lagðar til miða að því að efla starfsemi sýslumanns og stuðla að skilvirkri og notendamiðaðri þjónustu þannig að almenningur geti nýtt sér þjónustuna óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar best hverju sinni. Markmiðinu má skipta upp í þrjú undirmarkmið: 1. Gera þjónustuna eins góða og hægt er gagnvart almenningi.

2. Nýta til fulls það fjármagn sem ráðstafað er til reksturs sýslumanns og verkefna hans.

3. Að standa vörð um grunnþjónustu hins opinbera og að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni.

Með því að sameina núverandi níu sýslumannsembætti í eitt verður unnt að byggja upp öflugar og nútímalegar starfsstöðvar um land allt. Bætt aðgengi að stafrænni þjónustu og aukin sérhæfing við framkvæmd verkefna þykir líkleg til að leiða af sér vandaða og skilvirka málsmeðferð, sem og sérhæfðari þjónustu sem endurspeglar betur þarfir almennings og þá framþróun sem átt hefur sér stað hjá sýslumannsembættunum undanfarin ár. Að auki þykir sameining embættanna til þess fallin að styrkja rekstrargrundvöll hins nýja embættis og skapa tækifæri fyrir fjölbreyttari störf og bætt starfsumhverfi með vandaðri stjórnun og stoðþjónustu, ekki síst á landsbyggðinni.

Með frumvarpinu er lögð áhersla á að starfsemi hins opinbera á landsbyggðinni verði efld og að innviðir sem þar eru fyrir verði betur nýttir í þágu frekari uppbyggingar starfseminnar. Um er að ræða mikilvægt byggðamál sem felst m.a. í því að leita leiða til að fjölga störfum og auka fjölbreytileika þeirra á landsbyggðinni sem og að standa vörð um þau stöðugildi hins opinbera sem fyrir eru ásamt því að tryggja jafnt aðgengi íbúa landsins að opinberri þjónustu. Breytingarnar styðjast við áherslur um umbætur í þjónustu og rekstri sýslumanna í samræmi við útgefna framtíðarsýn þar um, auk þess að ráðast í hagræðingu verkefna samhliða stafrænni þróun.

Miðað er við að landinu verði skipt upp í svæði sem lúta stjórn millistjórnenda, svonefndra svæðisstjóra. Svæðaskiptingin mun ekki hafa áhrif á þjónustuþega þar sem þeim mun standa til boða að leita á þá starfsstöð sem þeim hentar hverju sinni, óháð búsetu eða öðrum þáttum sem áður höfðu áhrif á verkaskiptingu sýslumanna. Svæðaskipting er fyrst og fremst ákveðin fyrir innra skipulag hins nýja embættis og til þess að tryggja að starfsemi hins opinbera verði áfram dreifð um landið og þannig aðgengileg í nærumhverfi almennings, óháð búsetu. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að nýr sýslumaður geti með tímanum endurskipulagt starfsemina og falið hverju svæði ábyrgð á tilteknu fagsviði eða málefni til að tryggja enn frekar samræmda framkvæmd, aukin afköst og vandaðri málsmeðferð. Er þar fyrst og fremst horft til eiginlegrar stýringar og vinnslu erinda og því standi þjónusta sýslumanns áfram almenningi til boða á öðrum starfsstöðvum. Ljóst þykir að stafrænar lausnir henta ekki öllum þjónustuþegum og því er mikilvægt að almenningur geti áfram leitað á næstu skrifstofu sýslumanns eftir þjónustu hins opinbera. Stafrænar lausnir eru því fyrst og fremst ætlaðar sem viðbót við þá þjónustu sem sýslumannsembættin veita í dag.

Samkvæmt 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins ber sýslumaður ábyrgð á stjórn embættisins. Hann skal gæta þess að embættið starfi í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli, móta stefnu í störfum þess og bera ábyrgð á fjárhagslegum rekstri. Sýslumaður ræður starfslið við embætti sitt, þar á meðal svæðisstjóra sem er ætlað að fara með daglega stjórn starfsstöðva innan skilgreindra svæða og þau verkefni sem þeim eru falin í samráði við sýslumann. Í 2. gr. er gerð nánari grein fyrir verkaskiptingu sýslumanns og svæðisstjóra með því að telja upp helstu hlutverk þeirra. Sú upptalning endurspeglar að hluta núverandi verkefni sýslumanna og Sýslumannaráðs en til viðbótar þeim eru talin upp ýmis ný verkefni sem hafa skýra samsvörun við áherslur stjórnvalda í byggðamálum. Mikilvægt þykir að veita svæðisstjórum skýrt umboð til að standa vörð um byggðamál innan sinna svæða í samráði við og á ábyrgð sýslumanns.

Frumvarpið kveður á um að hið nýja skipulag taki gildi 1. janúar 2026 en að ráðherra verði heimilað að auglýsa og skipa nýjan sýslumann við samþykkt frumvarpsins ásamt því að skipa verkefnisstjórn, þannig að tími gefist til að undirbúa skipulag nýja embættisins, sbr. ákvæði til bráðabirgða I. Þá er jafnframt miðað við að ráðherra verði gert að skipa sérstaka nefnd sýslumanni til ráðgjafar vegna atriða sem snúa sérstaklega að starfsfólki embættanna og er miðað við að starfsfólk eigi meðal annarra sæti í þeirri nefnd. Frumvarpið gerir ráð fyrir að hægt sé að stíga ákveðin skref í átt að hinu nýja skipulagi fyrir gildistöku laganna en að nýr sýslumaður hafi svigrúm til að skipuleggja starfsemi nýja embættisins með starfsfólki sínu árin á eftir.

Gert er ráð fyrir að allt starfsfólk sem er í starfi þegar lögin öðlast gildi og koma til framkvæmda hinn 1. janúar 2026 verði starfsfólk hins nýja embættis sýslumanns. Þar sem gert er ráð fyrir að störf starfsfólks sem er í starfi við gildistöku laganna verði ekki bundin af 7. gr. laga nr. 70/1996 þarf ekki að auglýsa þau laus til umsóknar. Hvað sýslumenn núverandi embætta varðar er gert ráð fyrir að stöður þeirra verði lagðar niður. Þess ber að geta að frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra sé þó heimilt að taka ákvörðun um að flytja sýslumann embættis sem lagt verður niður í embætti nýs sýslumanns skv. 36. gr. laga nr. 70/1996. Þegar nýr sýslumaður tekur til starfa fellur það í hans hlut að auglýsa og ráða í stöður svæðisstjóra og tekur það starfsfólk við hluta þeirra verkefna sem sýslumenn núverandi embætta sinna.

Sú mikla framþróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár í verkefnum sýslumanna, m.a. með auknu samstarfi embættanna og aukinni notkun tæknilausna við framkvæmd verkefna, ásamt mögulegum nýjum verkefnum fyrir embættin, felur í sér breyttar þarfir og nýjar stöður sem talið var rétt að greina fyrir gildistöku laganna. Þá var jafnframt reiknað með að sameiningin myndi leiða til þess að vissum störfum yrði ofaukið þar sem þeim hefur verið sinnt í níu stofnunum, oft í hlutastarfi, og því væri tækifæri til að sameina störfin og bjóða starfsfólki eftir atvikum önnur störf. Því þykir rétt að leggja til að starfsfólk færist yfir til nýs embættis þótt mögulega komi til þess að einstaka starfsmenn þurfi að hlíta breytingum á starfi. Mikilvægt er að vandað verði til verka þegar kemur að undirbúningi og skipulagi nýs embættis og að ferlinu verði stýrt af nýjum sýslumanni ásamt verkefnisstjórn og ráðgefandi nefnd sem miðað er við að ráðherra skipi við samþykkt frumvarpsins.

Frumvarpið snertir fyrst og fremst Sýslumannaráð, sýslumenn og starfsfólk embættanna, Samband íslenskra sveitarfélaga og almenning. Áform um lagabreytingar og tengd verkefni sem ráðuneytið vinnur að svo sem greining á húsnæðiskosti, aukið samstarf við sveitarfélögin og efling starfseminnar á landsbyggðinni með nýjum verkefnum, voru kynnt fyrir sýslumönnum og starfsfólki þeirra í mars 2022. Samhliða voru áformin kynnt bréflega fyrir Sambandi íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtökunum og sveitarfélögum landsins og haldnir fundir með einstaka sveitarfélögum og landshlutasamtökum þegar eftir því var leitað. Einnig hafa verið teknir upp reglulegir samráðsfundir með Sýslumannaráði, í samræmi við 6. gr. laga nr. 50/2014, til að ræða einstaka atriði áformanna nánar auk þess sem embætti sýslumanna voru heimsótt til að ræða við starfsfólkið um fyrirhugaðar breytingar og áhrif þeirra á starfsemi embættanna.

Við samningu þessa frumvarps hefur dómsmálaráðuneytið átt samráð við kjara- og mannauðssýslu ríkisins vegna réttinda starfsmanna embættanna. Drög að frumvarpi þessu voru send sýslumönnum til umsagnar 15. júní 2022 og tveir kynningarfundir haldnir í kjölfarið til að fylgja drögunum eftir, annars vegar fyrir sýslumenn 16. júní og hins vegar fyrir allt starfsfólk embættanna 28. júní 2022. Tekið var tillit til þeirra ábendinga og athugasemda sem bárust ráðuneytinu í kjölfar kynninganna áður en frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Auk framangreinds óskaði ráðuneytið eftir tillögum Byggðastofnunar um staðarval fyrir aðsetur sýslumanns vegna tengingar frumvarpsins við byggðamál ásamt því að ráðherra mætti á fund stjórnar Byggðastofnunar 29. ágúst 2022 til að kynna áformin nánar.

Drög að frumvarpi þessu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og þar var fresturinn lengdur frá því í lok júlí upphaflega til 15. ágúst. Þá var ákvörðunin kynnt á vef Stjórnarráðsins, ásamt því að umsagnaraðilum og áskrifendum samráðsgáttarinnar var send tilkynning þess efnis.

Það bárust 32 umsagnir og við úrvinnslu þeirra að loknu samráði voru gerðar nokkrar efnislegar breytingar á frumvarpinu auk þess sem leitast hefur verið við að veita frekari skýringar og eftir atvikum rökstuðning, þar sem umsagnaraðilar töldu ákvæði og/eða athugasemdir í greinargerð ekki nægilega skýrar.

Virðulegur forseti. Hér er verið að stíga stórt skref og hagsmunir neytenda voru hafðir að leiðarljósi við vinnu í þessu stóra máli. Það liggur alveg fyrir, hjá öllum þeim sem kynna sér þessi mál, að með nútímatækni og þróun í störfum á skrifstofum sýslumanna víða um landið er smátt og smátt að fjara undan þeirri starfsemi. Það er því lykilatriði að svona sameining geti átt sér stað til að sameina verkefni og styrkja þessar starfsstöðvar. Hugmyndafræðin sem liggur að baki þessu frumvarpi er að nýta betur þann húsakost sem er verulega vannýttur á mörgum stöðum þegar kemur að húsnæði sýslumanna og fækka þar með störfum á höfuðborgarsvæðinu en þó fyrst og fremst kannski að fjölga verkefnunum. Það eru mörg tækifæri, til að mynda í fjölda úrskurðarnefnda sem eru að mestu leyti staðsettar á lögmannsstofum eða úti í háskóla hér og þar um bæinn og kannski erfitt að henda reiður á. Þarna eru kjörin verkefni til að sameina það inn í sýslumannsembættið og fela ákveðnum sýslumannsskrifstofum eða vinnustöðum út um land að sinna þeim verkefnum. Það eru mörg önnur verkefni sem er mögulegt að færa þarna inn til að styrkja stjórnsýsluna og þjónustuna við íbúa landsins. Það eru að verða gríðarlegar breytingar, eins og ég segi, á forsendum starfsemi sýslumannsembætta í dag. Það nýjasta eru bara þinglýsingar vegna fasteignakaupa sem allar eru að verða rafrænar. Við erum að færast meira og meira inn í þetta rafræna form. Þjónustan þarf eftir sem áður að vera til staðar og ef við tryggjum það ekki með því að stíga svona skref, þar sem við náum heildaryfirsýn yfir þetta og getum deilt verkefnum út um land sem við getum falið þessum embættum, mun smátt og smátt fjara undan starfsemi þessara skrifstofa. Það hefur líka verið mikil áskorun fyrir stjórnsýsluna og ráðuneytið að vinna að samræmingu starfshátta þannig að þjónustan er að einhverju leyti mismunandi eftir því hvar fólk býr, þ.e. hvaða þjónustu fólk fær og hvernig mál eru afgreidd hjá mismunandi sýslumannsembættum. Þó að stór skref hafi verið tekin með stofnun sýslumannaráðs, þar sem margt gott hefur gerst, er þetta enn þröskuldur og það er mat sérfræðinga á þessu sviði að þetta sé mjög mikilvægt skref til að treysta þessa starfsemi inn í framtíðina.

Við erum líka með álit frá Ríkisendurskoðun, ítrekað álit þar sem einmitt er bent á þessa lausn til frekari þróunar á þessari þjónustu. Við erum líka með ítrekaða niðurstöðu hjá fjármálaráðuneytinu um að það eigi að fækka svokölluðum örstofnunum en þær eru, ef ég man rétt, um 60 í landinu og þeim þarf að fækka. Hér færu væntanlega sjö eða átta stofnanir af þessum í burtu og með sameiningu héraðsdómstóla, sem er annað mál sem ég hef komið með hér inn í þingið og á eftir að mæla fyrir, er um að ræða sjö örstofnanir, þannig að bara með þessum tveimur málum fækkum við örstofnunum um fjórðung í einu skrefi. Þar er alveg það sama undir, þróun í tækni og öðru gerir það að verkum að við getum með miklu betri hætti farið að nýta starfsstöðvarnar úti á landi. Landsbyggðarvinkillinn var eitt af leiðarljósum okkar við vinnu við þetta mál. Við lögðum á okkur mikla vinnu, fórum um allt land, funduðum með öllum starfsstöðvum. Eðlilega voru áhyggjur starfsmanna til staðar og við reyndum að taka eins mikið tillit til þess og hægt er. Breytingarnar eru samt í farvatninu. Störfin sem þetta fólk er að vinna í dag munu breytast. Mörg þeirra munu hreinlega ekki verða til eftir stuttan tíma. Með þessari sameiningu náum við að búa til öflugri störf á þessum svæðum. Lítil embætti, þau eru með fjármálastjóra í hlutastarfi, þau hafa ekki efni á kerfisstjóra, þau þurfa að vera að sameina þessi störf með einhverjum öðrum. En með því að gera þetta að alvöruembætti þá náum við að styrkja þetta og dreifa þessari starfsemi um landið og viðhalda og efla þjónustuna. Þetta er sambærilegt mál og hæstv. dómsmálaráðherra hefur boðað í þingmálaskrá. Það er ágætt að við tökum bara ómakið af hæstv. ráðherra hér og komum þessu inn í þingið til þinglegrar meðferðar sem allra fyrst þannig að það megi ljúka þessu máli fyrir vorið. Það er allt í lagi að taka það fram að formaður flokks hæstv. ráðherra lýsti á sínum tíma yfir stuðningi við þetta mál þegar ég kynnti það.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu, virðulegur forseti, verði málið sent til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til frekari vinnslu.