156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[18:31]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir það sem hann hefur fram að færa hér, bæði með þessu máli og það sem hann er að leggja til inn í umræðuna um sameiningu sýslumannsembætta sem öðrum þræði er auðvitað líka ákall um að farið sé betur með fjármuni almennings. Það er eitthvað sem við ættum öll að hafa í heiðri hér í þessum sal, að sjálfsögðu. Ég sé ekkert athugavert við það að hv. þingmaður leggi fram þetta mál sem hann vann að á sínum tíma í ráðuneytinu þótt núverandi formaður flokks hv. þingmanns hafi ekki treyst sér til þess að fara áfram með það. Það er bara fínt, þetta er viðbót í púkkið og svo kemur auðvitað mál frá ráðherranum sem er að einhverju leyti og miklu leyti auðvitað byggt á þeirri vinnu sem farið hefur fram í ráðuneytinu. Hann kom að því í ræðu sinni, sem við auðvitað öll tókum eftir, að fyrrverandi dómsmálaráðherra, núverandi hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, hélt ekki áfram með málið eftir að það urðu ráðherraskipti í Sjálfstæðisflokknum um árið. Ég veit að hv. þm. Jón Gunnarsson hafði lagt mikið á sig við að reyna að ná þessu máli í gegn en svo stoppaði það á eftirmanninum og núna er eftirmaðurinn orðinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Mig langaði bara að spyrja hvort allur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sé sammála um þetta mál og þá líka formaður flokksins, sem treystir sér ekki til þess að fara áfram með málið, og eins að fá bara kannski aðeins frásögnina af því af hverju það var ágreiningur um þetta í ríkisstjórninni. Hvað var það sem stóð í samstarfsflokknum, sem var þá Framsóknarflokkurinn á sínum tíma, og hvernig væri mögulega hægt að mæta því til að koma þessari hugsun í gegn, að það sé gott að sameina sýslumannsembættin?