156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[18:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir. Ég skildi þetta einmitt svolítið þannig að bæði það mál sem hv. þingmaður er að leggja hér fram og svo líka bara almennt vinnan í ráðuneytinu, sem verður þá byggt á í frumvarpi dómsmálaráðherra sem kemur síðar inn í þingið, að þetta sé einmitt grunnhugsunin, að þótt verið sé að fækka sýslumönnum þá sé ekki verið að veikja starfsstöðvar úti á landi eða starfsemi úti á landi heldur þvert á móti að rjúfa múra, sem gerir það að verkum að það er þá auðveldara að flytja verkefni á milli og jafnvel þá að efla starfsstöðvar enn frekar með nýjum störfum og nýjum verkefnum. Ég hefði haldið að sú grunnhugsun ætti nú kannski frekar að nást í gegn hjá þeim þingmönnum sem tala mikið um störf úti á landi, sem er náttúrlega bara stór hluti af því sem eðlilegt er að landsbyggðarþingmenn tali um, og þar af leiðandi kom það mér svolítið á óvart á sínum tíma að Framsóknarflokkurinn treysti sér ekki til að vera með á þessu máli. En mig langar þá bara í framhaldinu til þess að spyrja hv. þingmann — það er alveg rétt, nú erum við þá með tvö mál um það sama en þau verða auðvitað ekki nákvæmlega eins. Ég ætlaði bara að fá það fram hjá hv. þingmanni hvort hann teldi að sín afurð, sem hann er að leggja hérna fram, væri eitthvað sem hann ætlaði að standa mjög fastur á eða hvort hann væri ekki opinn fyrir því að skoða með jákvæðum hætti, og hans flokkur, þær breytingar sem verða í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra sem á eftir að koma hérna fram og sjálfsagt verða mikil umræða um. Er ekki svolítið sama hvaðan gott kemur?