156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[18:44]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni aftur fyrir framsöguna og fyrir svarið. Það er vissulega rétt að það er margt að breytast með tækni og þörf á því að styrkja starfsemi víða. Mig langar kannski að spyrja, af því að hv. þm. talar um að fjölga verkefnum og það mun kannski fela í sér að færa til verkefni frá öðrum stofnunum yfir til þessara svæðisstöðva: Ertu að sjá fyrir ákveðnar lagabreytingar á annarri starfsemi eða hvaða hvata sérðu fyrir til að tryggja það að það verði vöxtur heima í héraði en ekki samdráttur?