sýslumaður.
Já, þetta eru bara góðar vangaveltur, virðulegur forseti. Hvaða störf eru það sem við getum fært? Við létum boð út ganga til allra annarra ráðuneyta að fara að hugsa það með okkur út frá sinni starfsemi hvað væri hægt að færa út á land. Við þekkjum það öll, þingmenn, sem höfum verið að ferðast um landið á undanförnum árum, að það er mikil áhersla og mikið ákall víða af landsbyggðinni um að fjölga opinberum störfum og auðvitað er það annars vegar þá störfin sem fólk vill fá í heimahérað og hins vegar þá þjónustan sem fylgir slíkum störfum. Við sáum fyrir okkur fjölmörg tækifæri í þeim efnum, að geta farið með ákveðin verkefni sem tilheyra öðrum ráðuneytum. Önnur ráðuneyti gætu jafnvel komið sér upp starfsstöðvum þar sem yrðu samlegðaráhrif af starfseminni við þessi embætti. Þar sem væri kominn grunnur að starfsemi, öflugri starfsemi, og þar sem húsnæði er víða fyrir hendi gætu önnur ráðuneyti verið að setja inn ákveðna starfsemi.
Við horfðum líka til allra þessara úrskurðarnefnda. Það er mjög áhugavert mál. Ég man ekki, þetta eru margir tugir úrskurðarnefnda sem langflestar eru í skúffum lögmanna úti í bæ eða í skúffum í háskólum landsins eða einhvers staðar annars staðar. Það er sannast sagna bara ekki mikil yfirsýn yfir þetta í heild sinni. Þarna er alveg kjörið tækifæri að sameina ákveðna flokka á ákveðnum svæðum, mynda þar með ákveðinn grunn. Þú myndar líka þekkingu þá á málaflokknum þannig að þótt fólki hverfi — eins og gerist oft í þessum úrskurðarnefndum og afgreiðslunefndum, að það hverfur auðvitað fólkið og þá fer þekkingin með því — verður þekkingin alltaf til í þeirri starfsemi sem er á staðnum. Það eru því margir kostir sem fylgja því (Forseti hringir.) og hagræðing og miklu betri yfirsýn og væntanlega (Forseti hringir.) meira samsvarandi málsmeðferð í gegnum lengri tíma.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)