sýslumaður.
Frú forseti. Þetta er afskaplega áhugavert mál sem hv. þm. Jón Gunnarsson leggur fram og verður spennandi fyrir okkur í allsherjar- og menntamálanefnd að taka það inn, vonandi á svipuðum tíma og boðað frumvarp dómsmálaráðherra. Mig langar að spyrja hv. þm. Sigmar Guðmundsson um þann þátt frumvarpsins sem hér er fjallað um þar sem horft er til staðsetningar verkefnanna, staðsetningar sýslumanns. Eins og kom fram í máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar er lagt til í frumvarpinu að sýslumaður verði staðsettur á Húsavík. Nú þegar 72–73% þjóðarinnar búa á höfuðborgarsvæðinu, telur hv. þm. Sigmar Guðmundsson það vera nær þjónustunni að sýslumaðurinn sé hér eða er sú hugsun sem kemur fram í frumvarpi hv. þm. Jóns Gunnarssonar kannski betri, þ.e. að festa þennan embættismann ríkisins á einhverjum tilteknum stað úti á landi?