156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[18:55]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Aðeins til að skýra þetta staðsetningarmál nánar, mína skoðun á því og markmið okkar með því að fastsetja þetta með lagasetningu á ákveðnum stað úti á landi. Eins og ég sagði áðan var farið í sérstaka vinnu með Byggðastofnun og fleiri aðilum til að meta hvar væru heppilegir staðir fyrir þessa starfsemi úti á landi. Við töldum það og teljum mjög mikilvægt að staðsetningin sé lögbundin beint eða a.m.k. að þetta embætti verði staðsett á einhverju svæði utan stórhöfuðborgarsvæðisins. Það er hluti af trúverðugleika málsins að mínu mati. Það er nefnilega eðlilegt að um þetta mál sé deilt og að fólk hafi af þessu áhyggjur. Til að mynda ef það yrði niðurstaðan að staðsetja þetta embætti á höfuðborgarsvæðinu þá held ég raunverulega að það sé miklu meiri hætta á því að verkefnin leiti hingað sem muni þá frekar grafa undan starfsstöðvum úti á landi, sérstaklega flóknari verkefni og annað sem væri falið þessum skrifstofum. Það væri ákveðin hætta á því. Það að negla niður þessa staðsetningu með lögum var til að setja punktinn yfir i-ið um þessa grunnáherslu málsins, að þetta er byggðatengt mál númer eitt, tvö og þrjú. Frá því mun ég aldrei vilja víkja í þessari málsmeðferð. Ég tel líka að þetta sé í raun gríðarlega mikið tækifæri fyrir okkur til að flytja stofnun með höfuðstöðvar út á land sem er síðan með starfsstöðvar víða. Það er ekkert ólíklegt að starfsstöðin á höfuðborgarsvæðinu verði eftir sem áður ein öflugasta starfsstöðin. Það gefur eiginlega augaleið með alla þá þjónustu sem hún þarf að veita. En tækifærin til að efla starfsstöðvarnar úti um land liggja í þessu og trúverðugleikinn liggur í því að við treystum einhverjum sem fer með valdið í þessari stofnun í framtíðinni og er staðsettur úti á landi að taka ríkt tillit til þeirra grundvallarsjónarmiða sem frumvarpið byggir á.