156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

sýslumaður.

78. mál
[19:00]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að mínu mati er það, eins og ég hef sagt, algjört grundvallaratriði til að sýna fram á trúverðugleika málsins og skýran vilja löggjafans þegar við afgreiðum þetta, svo það fari ekkert á milli mála, að þessi staðsetning sé nokkuð á hreinu. Þetta verður samt örugglega ekki fjölmennasta starfsstöðin og ekkert endilega fjölmennasta starfsstöðin úti á landi en hún hefur auðvitað mikið vægi.

Hv. þingmaður, sem þekkir vel til starfsemi lögreglunnar, kemur inn á sameiningu lögreglunnar og hvernig ákveðnir staðir hafa veikst. Það er alveg rétt og á grundvelli þess fékk ég alla lögreglustjóra landsins þegar ég var í dómsmálaráðuneytinu til að setjast niður. Á endanum náðum við samkomulagi sem allir skrifuðu undir um það að dreifa verkefnum á milli embætta, að lögreglumennirnir sem væru nauðsynlegir á Hólmavík fengju frá stærri embættunum verkefni til að sinna, t.d. í rannsóknastarfi og öðru, og þannig værum við að skjóta styrkari stoðum undir starfsemina á viðkomandi stað. Við værum að gera störfin eftirsóknarverðari fyrir lögreglumenn sem væru að koma t.d. úr Lögregluskólanum. Þeir fengju fjölbreyttari verkefni á fámennari stöðum og þannig myndum við geta tryggt grunnþjónustuna alls staðar. Þetta er í raun alveg sama hugmyndin, að við styrkjum grunnþjónustuna, styrkjum byggðirnar. Sami grundvöllurinn er í frumvarpi um sameiningu héraðsdómstóla þar sem við settum inn í lögin lagaákvæði sem tryggir lágmarksáhöfn. Eðlilega vakti það líka umræðu og aðallega lögðust þeir gegn þessu sem voru dómstjórar yfir sjálfum sér úti á landi af því að þeir misstu spón úr aski sínum. Það var eins með sýslumennina. Ég held að það sé tímabært að þingið hugsi hlutina svolítið í þessa átt en tali ekki bara um þá í byggðastefnu og öðrum plöggum sem við látum frá okkur fara.