156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

orkuöryggi almennings.

16. mál
[19:03]
Horfa

Flm. (Halla Hrund Logadóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég óska í dag eftir stuðningi þingheims við að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að leggja fram frumvarp sem tryggi orkuöryggi almennings og stuðli um leið að hagkvæmu og stöðugu verðlagi raforku til þessa hóps um allt land. Við erum að sjá mestu hækkanir á raforku til almennings í áratugi. Þær hækkanir eru ekki eingöngu vegna skorts á raforku, þær eru vegna skorts á regluverki. Mig langar til að undirstrika þetta. Við erum að tala um ástand sem er ekki eingöngu vegna skorts á raforku heldur vegna skorts á lagaumgjörð, skorts á regluverki. Áður var það þannig að staða almennings var tryggð í lögum. Raforkukerfið okkar hér á landi er nefnilega einstakt. Það er þannig að við byggjum það upp á náttúrunni, á nýtingu hennar, á endurnýjanlegum orkugjöfum þar sem sveiflur eru tíðar. Kerfið okkar er einangrað. Forverar okkar vissu að það væri mikilvægt að tryggja orkuöryggi almennings sérstaklega. Þess vegna var það gert og var þannig lengst af. Nú, með innleiðingu á orkumarkaði, hafa reglur um forgang almennings hins vegar verið afnumdar og almenningur settur út í kuldann. Þetta ástand vilja stærstu orkukaupendur, eins og álver, ekki hafa. Höfum í huga að slíkur iðnaður hafði lifað í sátt og samlyndi við almenning í landinu allt til 2003 þegar þetta var afnumið og vill ekkert frekar en að orkuöryggi almennings sé tryggt. Samt er það þannig að löggjafinn dregur lappirnar í að tryggja forgang almennings og leyfir orkuverði að hækka þannig að fyrirtæki sem eru mikilvæg fyrir okkur, líkt og garðyrkjubændur, líkt og fyrirtæki í annarri matvælaframleiðslu, eru að ströggla eins og við höfum séð dæmi um í fréttum.

Virðulegur forseti. Þetta getur ekki verið góð pólitík. Þingmenn verða að átta sig á að þeir bera bæði ábyrgð á orkuöryggi almennings og ábyrgð á því að ákveða hvaða virkjunarkosti á að fara í. Bæði málin þarf að ákveða en það þarf að aðskilja þau. Það er ekki í boði að sitja aðgerðalaus og nýta hækkanir á almenning eins og eins konar þrýstiafl á að það eigi að einfalda regluverk fyrir nýjar virkjanir þegar við vitum öll sem hér erum inni að nýjar virkjanir taka ár ef ekki áratugi í framkvæmd og þegar þær eru loksins komnar til framkvæmda er allsendis óvíst í hvað sú orka sem þær framleiða verður nýtt. Þess vegna þarf að aðskilja þessa þætti og fara í það að tryggja orkuöryggi almennings. Það er heiðarleg pólitík að gera þetta í þessari röð.

Mig langar líka að segja að þegar við erum að tala um orkuöryggi almennings þá erum við að tala um orkuöryggi heimila, sem er um 4% af okkar heildarframleiðslu, en við erum líka að tala um orkuöryggi fyrirtækja, smærri notenda, sem eru flest fyrirtæki sem við þekkjum. Ef við hugsum bara um fyrirtæki í Skeifunni og fyrirtæki þegar við keyrum hringinn í kringum landið, flest þessara fyrirtækja falla undir almenning. Samtals er orkunotkun almennings 20%. Síðan er það restin af orkumarkaðnum og það eru stórir notendur. Það er iðnaðurinn, eins og t.d. álver og gagnaver, sem eru stórir notendur sem nýta þessi 80%. Þessir notendur eru skilgreindir sem stórnotendur í lagaumgjörðinni.

Mér finnst mikilvægt að draga fram að allir þessir ólíku orkunotendur, heimilin, fyrirtæki sem eru þessir minni notendur og stóru iðnfyrirtækin, eru mikilvægir fyrir hagkerfið okkar. Þeir eru allir mikilvægir fyrir hagkerfið okkar en samningsstaða þeirra er hins vegar afar ólík. Við erum að tala um að stærri notendur gera langtímasamninga um mikið magn af orku til langs tíma. Hvað þýðir það? Það þýðir að þau tryggja sig fyrir verðsveiflum, tryggja orkuöryggi sitt langt fram í tímann. Orkuöryggi þeirra er því tryggt. Það er hins vegar svo að almenningur hefur ekki sömu langtímasamninga. Þess vegna býr almenningur við allt annað orkuöryggi og verður fyrir allt öðrum áhrifum heldur en stórir notendur þegar við erum að tala um orkuskort á þann hluta markaðarins. Litlu fyrirtækin eru, bara til að skýra þetta enn frekar, einfaldlega þessir litlu kaupendur, heimilin og fyrirtæki í Breiðholti, niðri í Laugardal yfir í bæi og byggðir landsins. Ég vil undirstrika að þetta misvægi getur komið sérstaklega illa við íbúa á landsbyggðinni, íbúa þar sem við erum t.d. með fjarvarmaveitur, Ísafjörð, Vestmannaeyjar og íbúa á köldum svæðum sem treysta í ofanálag á raforku til húshitunar.

Það hafa orðið mjög miklar breytingar á orkuumhverfi Íslands á undanförnum áratugum, eða frá árinu 2003 en þá byrjum við að innleiða orkumarkað Evrópusambandsins. Í dag, í því markaðsumhverfi, er ekkert því til fyrirstöðu að almenningur í landinu verði hreinlega undir í samkeppni ef það er einhver annar kaupandi sem býður betur. Það eru engin lagaleg úrræði. Þetta þekki ég vel sem fyrrum orkumálastjóri. Það eru engin lagaleg úrræði til að grípa inn í ef þörf er á. Almenningur er á ystu nöf í ölduróti orkumarkaðarins á meðan þessir stærri kaupendur búa við langtímasamningana sem tryggja orkuöryggi þeirra.

Það er oft gott að horfa til baka og skoða söguna. Ég minntist á það áðan að forverar okkar vissu að okkar einangraða sveiflukennda orkukerfi krefðist þess að minni notendur hefðu varnir. Þess vegna var það þannig til ársins 2003 að Landsvirkjun bar þessa skýru lagalegu ábyrgð á orkuöryggi almennings. Þessi ábyrgð er síðan tekin út 2003 og kannski reyndi ekki svo mikið á hana fyrr en að orkukrísan á sér stað í Evrópu. Eftirspurn eftir raforku eykst hratt hér á landi á sama tíma og það eru aðrir þættir eins og t.d. bilanir og annað, lónsstaða, sem spilar saman og þá fer að reyna á þetta örfáum árum síðar. Góðu fréttirnar eru hins vegar að það eru fjölmargar leiðir innan orkulöggjafar Evrópusambandsins til að tryggja orkuöryggi almennings, eðlilega kannski því að raforkuöryggi íbúa er ekki séríslensk krafa. Þetta er einfaldlega nauðsynjavara, grunnþjónusta við borgara sem er ekki hægt að skipta út með hraði. Það má því færa sterk rök fyrir því að það sé nauðsynlegt að tryggja bæði heimilum og minni orkunotendum aðgengi að raforku óháð orkuframleiðslu hverju sinni. Og það þarf sérstaklega að gera í umhverfi eins og við erum núna þegar umframeftirspurn er til staðar. Þetta er aftur sérstaklega mikilvægt að útfæra á Íslandi þar sem við erum að tala um eyjuna okkar, einangrað raforkukerfi. Hugsið bara um þetta í samhengi við t.d. Noreg, sem við berum okkur oft saman við. Noregur er vissulega líka með mikið vatnsafl, mikinn hluta af endurnýjanlegri orku, en þrátt fyrir það eru þeir tengdir öðrum orkumarkaði. Þeir eru með aðra framleiðslu, eins og olíu líka, þannig að þeirra staða er allt önnur en kerfið okkar sem er lítið og einangrað og byggir á nýtingu náttúrunnar sem sveiflast, alveg eins og við þekkjum bara í annarri auðlindanýtingu, í nýtingu á sjávarfangi hér um land.

Mig langar líka til að draga fram að möguleiki á orkuskorti til heimila, sem ég hef fjallað hér um, það er ekki ævintýraleg spennusaga. Við erum ekki að tala um einhvern möguleika sem hefur aldrei reynt á. Við erum einfaldlega að tala um lýsingu á stöðu sem hefur raungerst að hluta og getur endurtekið sig. Þá fór saman mikil sala á raforku til stórnotenda, án þess að ný framleiðsla kæmi inn, og töluverðar sveiflur vegna tíðarfars og bilana. Þessi aukna eftirspurn var m.a. vegna verðhækkana í Evrópu eftir innrás Rússa í Úkraínu, sókn gagnavera sem hafa keypt stærstan hluta umframorku á Íslandi frá 2015 og fulla nýtingu iðnaðar á núverandi samningum þar sem verð hækkaði eftir Covid. Það var á þeim tíma ákveðin óvissa um hvort næg raforka væri til fyrir almenning. Það reyndi á þetta. Það var mikil óvissa hjá orkufyrirtækjunum og þá kom í ljós að það voru engin lagaleg úrræði til að grípa inn í. Samtímis skorti orku til að jafna flutningstöp raforkukerfisins en umfang flutningstapa, sem er í raun og veru þörf á að hafa í raforkukerfinu til þess að kerfið gangi, er um 2% af orkuframleiðslunni okkar, sem er u.þ.b. helmingur þess sem heimilin nota. Það vantaði orku í þessi flutningstöp. Og hvað gerðist með verðið? Jú, á stuttum tíma hækkaði raforkuverð í þessi 2% um 300% fyrir það magn sem skorti. Það sýndi okkur svart á hvítu hvað aðgerðaleysi í garð heimila getur haft neikvæð áhrif á orkuverð, eitthvað sem er grundvöllur að lífskjörum okkar, grundvöllur að lífskjörum fyrir heimilin í landinu og hefur líka verið grundvöllur að samkeppnishæfni ólíkra fyrirtækja sem starfa hér á landi. Þessi niðurstaða er því gríðarlega mikilvægt umhugsunarefni fyrir okkur sem sitjum hér á þingi og eigum að horfa á að tryggja öryggi borgaranna og orkuöryggi er sannarlega þar undir.

Á næstu árum má gera ráð fyrir áframhaldandi umframeftirspurn eftir endurnýjanlegri orku, m.a. er það vegna krefjandi aðstæðna á orkumörkuðum eins og í Evrópu. Það er líka vegna aukinnar raforkunotkunar, t.d. vegna orkuskipta, en hvort tveggja mun auka hættuna á því að það verði orkuskortur til almennings með tilheyrandi verðhækkunum. Hér munu litlar sveiflur, eins og einfaldlega bara breytingar á tíðarfari, geta ráðið miklu um þróunina á næstu misseri. Landsvirkjun hefur ítrekað vakið athygli á nauðsyn þess að bregðast við, nú síðast bara á ársfundi sínum sem var haldinn fyrir viku eða tveimur. Orka náttúrunnar og HS Orka hafa ítrekað látið sig málið varða. Árið 2022 vann t.d. starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að fjölþættum tillögum til úrbóta á regluverkinu. Sá samráðshópur var mjög fjölbreyttur en auk orkuframleiðenda og orkusölufyrirtækja voru það Orkustofnun, Neytendasamtökin, Landsnet og Landvernd. Góðu fréttirnar eru að allir voru sammála um að þetta væri ástand sem þyrfti að laga, að þetta væri eitthvað sem okkur bæri skylda til að hafa í lagi, að enginn myndi vilja segja söguna af því hvernig við breyttum ekki lögunum og höfðum áhrif á það að hvert einasta heimili á landinu væri að glíma við hærra raforkuverð. Enginn vildi það.

Fyrrverandi umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra lagði fram frumvarp til breytinga á lögum á síðasta þingi. Nú hefur ráðherra málaflokksins flutt það frumvarp aftur. Hér verða þingmenn að hugsa um að þetta frumvarp sem hefur verið lagt hér fram er eingöngu að taka til aðstæðna þar sem verður orkuskortur til almennings sem þarf að bregðast við vegna bilana eða vegna náttúruhamfara, ekki vegna þess að það sé verið að umframselja í raun og veru til ákveðinna hópa á kostnað almennings. Það er þetta (Forseti hringir.) sem forverar okkar vissu og við þurfum að gera. Að óbreyttu mun staðan breytast til hins verra. Því segi ég, virðulegi forseti: Ég vona að þingheimur sé sammála um að við þurfum að bregðast við og því óska ég eftir stuðningi þingheims við að málið verði tekið á dagskrá á þessu þingi (Forseti hringir.) líkt og þingsályktunartillagan felur í sér.