orkuöryggi almennings.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Þær eru mjög mikilvægar því að það eru í raun og veru ólíkar leiðir að þessu marki. Evrópulöggjöfin gefur tiltölulega mikinn sveigjanleika til að hægt sé að ná markmiðinu. Ég get nefnt dæmi um það sem var hluti af vinnunni eins og hún var unnin á sínum tíma. Þá var tillagan t.d. sú að hægt væri að setja ákveðna framboðsskyldu eða söluskyldu á fyrirtækin, framleiðendur, til að selja inn á þennan almenna markað sérstaklega. Það væri hægt að gera það bæði eftir því hversu stór þau væru á markaðnum núna en líka eftir því hversu stór þau væru í heildarframleiðslu landsins. Ég get sagt hv. þingmanni að það hvort miðað væri við stærð núverandi framleiðenda á markaði eða stærð viðkomandi framleiðanda sem hlutfall af heildarframleiðslu landsins var dæmi um nokkuð sem orkufyrirtækin tókust á um. Það er þess vegna eitt af því sem þarf að leiða til lykta í þessu.
Annað atriði sem getur stutt við orkuöryggi er einfaldlega að það séu lengri samningar á milli heimila t.d. og þess orkusala sem heimilin versla við þannig að orkuöryggi þeirra sé tryggt til lengri tíma en árs í senn. Það er annar liður, auk þess að skapa skýrari leiðbeiningar um að orkusölum beri að tryggja að þeir eigi fyrir því framboði sem þeir lofa til sinna viðskiptavina. Það eru í raun og veru samverkandi þættir sem þurfa að koma þarna saman. Ég veit til þess að áframhaldandi vinna (Forseti hringir.) hefur verið í ráðuneytinu og vonast ég til að hægt sé að byggja á henni.