tjónabætur til bænda.
Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til forsætisráðherra. Ég veit að forsætisráðherra fer ekki með landbúnaðarmál en eins og alþjóð veit var síðasta ár heldur dapurt ár og ekki bara varð verulegt kal í túnum og alls konar óáran sem þar gekk yfir heldur gekk enn verr eiginlega fyrir sig er varðar grænmetisræktun, útiræktun, kartöfluræktun og annað slíkt, þar sem þetta er ekki hluti af stuðningskerfinu okkar í landinu. Og þess vegna beini ég fyrirspurninni til forsætisráðherra. Ég sá að eðlilegar landgræðslubætur og tjónabætur vegna ágangs álfta og gæsa voru greiddar út 12. febrúar, eða það var alla vega frétt um það úr Stjórnarráðinu, en hérna er um að ræða annars konar mál sem kemur sem betur fer ekki upp nema endrum og eins. Oft á tíðum hefur þá ríkisstjórn á hverjum tíma tekið þetta mál til sín. Þegar ég var í fjármálaráðuneytinu á síðustu dögum, eftir kosningar held ég, þá var mér gert ljóst að það væri búið að taka saman blað í desember, jafnvel nóvember, þar sem tjón fyrir þennan hóp, þ.e. annars vegar kaltjón og tjón garðyrkjubænda, var metið á allt að 1,3–1,5 milljarða en þeir gætu hvergi leitað neins stuðnings. Það var auðvitað þannig verkefni að ríkisstjórn sem var að fara frá gat ekki tekið slíka ákvörðun. Núna erum við komin fram í seinni partinn í mars og þetta tjón er auðvitað bagalegt. Þó að það sé vegna síðasta árs þá fer það fyrst og fremst að taka í á þessu ári þegar menn þurfa að ná sér í útsæði og kaupa fræ og áburð til að standa undir framleiðslu þessa árs. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hefur ríkisstjórnin fjallað um þetta og til hvaða aðgerða hyggst hún grípa?