156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

tjónabætur til bænda.

[15:13]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég kýs að túlka svarið þannig að þetta sé til jákvæðrar skoðunar. Svo finnst mér svolítið sérkennilegt að hreyta í fyrrum ríkisstjórn eftir á, sérstaklega í ljósi þessa máls. Var þetta ekki í fjárlögum? Nei, þetta var augljóslega ekki í fjárlögum. Við vorum ekki búin að spá fyrir um veður og vandræðagang bæði sumar og haust þegar fjárlög voru lögð fram. Þess vegna erum við jú með varasjóð. Hæstv. ráðherra þekkir það vel eftir langa setu sína í fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili og þekkir þar af leiðandi öll málin út og inn og það ætti ekki að koma henni stórkostlega á óvart að það eru alls konar verkefni sem koma upp sem ríkisstjórn á hverjum tíma þarf að grípa til. Og þegar ganga yfir einhvers konar náttúruhamfarir, hvort sem er yfir einstaka landshluta eða sveitarfélög eða einstakar búgreinar, þá hefur það bara verið reglan að ríkisstjórnin tekur málið til sín og nýtir varasjóð og tekur ákvarðanir á grundvelli þess sem þau telja rétt. Það er sú spurning sem ég er að koma með: (Forseti hringir.) Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við? Það þýðir ekki að klína þessu á fyrrverandi ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Við vorum með samantekt tjónsins í desember en tókum eðlilega ekki ákvörðun um það rétt áður en ný ríkisstjórn tók við.