156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

úrræði vegna ofbeldis í grunnskólum.

[15:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Það er mikið talað um þennan skóla og það er alveg rétt að þarna eru stór vandamál í gangi. En mér finnst bara rétt að halda því til haga að þetta er ekki vandamál skólans sem slíks. Þetta er samfélagið okkar og skólar eru í rauninni bara hitamælir á samfélagið. Allt það besta og allt það versta sem til er í landinu kemur inn í skólana. Núna er það Breiðholtsskóli sem hefur staðið í þessum erfiðu sporum og það hefur náttúrlega verið kallað eftir úrræðum í langan tíma en úrræðin hafa því miður ekki verið svo mörg. Það er nú bara þannig og við vitum það, við höfum heyrt alla þessa umræðu um vanda barna að undanförnu sem er búinn að vera mikill. Erindi hafa borist ráðuneytinu frá einstaklingum og þeim sem hafa látið sig málið varða og þessi mál eru jú vissulega í vinnslu í ráðuneytinu sem hefur verið í samskiptum við Reykjavíkurborg og landsteymi á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur líka komið að málum þannig að ráðuneytið er búið að vera að vinna í þessum málum eins og mögulegt er. En grunnskólarnir eru náttúrlega á ábyrgð sveitarfélaganna, það er bara þannig, og þar er líka búið að vera að vinna mikið í þessu. En þessi mál eru gríðarlega flókin. Það er bara ofboðslega erfitt að eiga við þetta. Þarna eru börn sem eru oft brotin og koma oft úr skelfilegum aðstæðum, án þess að ég geti tjáð mig neitt sérstaklega um þetta. Ég veit ekki nákvæmlega um einstaklingana sem þarna eiga í hlut. En við verðum að horfa á þessi mál í heild og þarna eru, eins og ég segi, bara miklir erfiðleikar sem erfitt er að grípa inn í og börn, líka þau sem brjóta af sér, eiga sín réttindi.