156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

staða íslenskrar tungu.

[15:27]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég vildi ræða hér enn á ný alvarlega stöðu íslenskrar tungu. Ég taldi hæstv. menningarmálaráðherra átta sig á alvarlegri stöðu í málaflokknum og þess vegna olli það mér vægum vonbrigðum að heyra hann ræða stöðu tungumálsins í umræðum um bókmenntastefnu á dögunum, á fimmtudag. Hann gerði þar heldur lítið úr stöðunni, varaði meira að segja við því að menn væru farnir að mála skrattann á vegginn þegar þeir ræða stöðuna, þó að mér sýnist enginn vera að því. Hins vegar er verra ef menn fara að sýna einhvern uppgjafartón í þessum málum. Ég ætla að leyfa mér að vísa í hæstv. ráðherra, með leyfi forseta, en hann sagði:

„Það er rétt að hér eru fleiri en áður sem tala ekki íslensku sem fyrsta mál a.m.k. og þeim veruleika verðum við einfaldlega að mæta af skilningi og umburðarlyndi og búa okkur undir það að þannig muni veröldin breytast.“

Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvað hæstv. ráðherra á við með því að segja að þetta sé veruleikinn sem við eigum að mæta af skilningi og umburðarlyndi og búa okkur undir breytta veröld. Hvernig lítur þessi breytta veröld út ef við reynum að ráða aðeins í rúnirnar? Þýðir það í huga ráðherra að við sættum okkur við að íslenska verði ekki aðalsamskiptamálið á öllum sviðum íslensks þjóðlífs? Hér er til þess að taka að íslenska er opinbert mál í landinu samkvæmt lögum en samt er enska notuð í auknum mæli af hálfu opinberra aðila, hvort sem það eru skólayfirvöld eða aðrir aðilar, jafnvel fjölmiðlar. Þar er t.d. enska og pólska notuð til hliðar við íslenskuna þannig að ef við höldum áfram að ráða í rúnirnar, hvernig lítur þessi breytta veröld út ef við mætum þessu af skilningi í stað þess einmitt, eins og ég legg til, að berjast gegn þróuninni? Segir þá hæstv. ráðherra t.d. að það væri eðlilegt skref að lögfesta stöðu ensku og pólsku sem opinberra mála í landinu? Úr því að raunveruleikinn í samfélaginu er á þá leið, (Forseti hringir.) telur ráðherrann eðlilegt, fyrst við erum að mæta þessu af skilningi og umburðarlyndi, að við lögfestum stöðu ensku og pólsku í landinu sem opinberra mála?