156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

staða íslenskrar tungu.

[15:31]
Horfa

Snorri Másson (M):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir brýninguna um sanngirni sem ég tek að sjálfsögðu til mín og við öll getum gert. En ég held kannski áfram í þessu atriði úr því að svar er komið fram um að hæstv. ráðherra telur ekki eðlilegt skref að lögfesta stöðu ensku og pólsku enda þótt enska og pólska séu af Stjórnarráðinu, af hálfu skólayfirvalda, í ríkismiðlinum og víða annars staðar hjá hinu opinbera notaðar, ekki til jafns við íslenskuna en til hliðar við íslenskuna í verulegum mæli. Ef þetta eiga ekki að vera lög, gott og blessað, beinir þá hæstv. ráðherra í ljósi þeirrar stöðu því ekki við þetta tækifæri hér til stofnana samfélagsins að forðast alla notkun útlensku í lengstu lög ef við ætlum ekki að lögfesta fyrirbærið?