156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

staðfesting ríkisreiknings 2023.

5. mál
[15:36]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að halda langa ræðu um þessar atkvæðaskýringu en bara af því að hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmönnum er tíðrætt um hvað allt sé miklu erfiðara en við áttum von á þá vek ég bara athygli á því að hér er um að ræða 100 milljörðum kr. betri afkomu en ætlað var í fjárlögum þess árs sem ríkisreikningur fjallar um. Ég vildi bara fá bara bros á andlit hv. stjórnarþingmanna af því að þetta er búið að vera svo erfitt af því að þeir höfðu bara ekki hugmynd um hverju þeir væru að taka við. En þetta var alla vega 100 milljörðum kr. betra heldur en ætlað var þannig að það hlýtur að vera bara gleði og ánægja. (Menntmrh.: Vegna ofþenslu og verðbólgu.) — Jæja, þar fór skemmtunin og gleðin. (Forseti (ÞSv): Ég bið hæstv. ráðherra að vera ekki að grípa fram í.) En ég er bara alveg sannfærður um að það getur glatt ykkur að þetta var miklu betra heldur en menn ætluðu.