156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Indlands.

91. mál
[15:40]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér eru fleiri mál sem eru gleðileg frá síðustu ríkisstjórn. Það er ánægjulegt fyrir útflutningsþjóðina Ísland að vera að ganga frá fríverslunarsamningum, í þessu tilfelli með vinum okkar í EFTA. Það er líka gott að vekja athygli á því — af því að hér er daðrað við Evrópusambandsaðild og jafnvel sjást hér þau teikn á lofti að það sé verið að reyna að hræða, af hálfu forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar, okkur inn í Evrópusambandið á einhverjum ótrúlegum forsendum, að það séu einhverjir öryggishagsmunir því fylgjandi sem stenst auðvitað ekki neina skoðun. En við erum hér að nýta viðskiptafrelsi okkar sem við börðumst fyrir mjög lengi. Ef svo illa færi að við myndum ganga í Evrópusambandið þá myndum við að afsala okkur því frelsi. En sem betur fer höfum við það enn þá og við nýtum það hér í samvinnu við vini okkar í EFTA. Það tók mjög langan tíma að þessir samningar yrðu báðir að veruleika og mikið fagnaðarefni að við séum að samþykkja þá í dag.