eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.
Frú forseti. Ég styð þessa skýrslubeiðni alveg heils hugar og mér finnst það reyndar alveg ótæk rök að nota það hér í umræðu að á síðasta kjörtímabili hafi menn ekki verið nægjanlega vakandi þegar menn ýttu á takkann. Það er fordæmi fyrir samstofna beiðni og nú hefur umhverfið breyst þannig að það er verið að kalla eftir upplýsingum að nýju. Það getur ekki verið að réttur þingmanns á einu kjörtímabili sé miklu ríkari en réttur þingmanns á öðru kjörtímabili. Það hefur verið ríkur skilningur hér í þinginu um það að skýrslubeiðnir eigi rétt á sér og það er fordæmi fyrir því að þessar upplýsingar hafi verið teknar saman.
Það sem við ættum hins vegar frekar að hafa áhyggjur af er að vinnan eins og hún var við skýrsluna síðast endurtaki sig ekki, þegar menn voru að móast við að afhenda upplýsingarnar lengi, báru fyrir sig persónuverndarlög. Og hvenær var svo skýrslan afhent? Á tímapunkti sem hentaði mjög vel fyrir síðustu kosningar, kvöldið fyrir. Það var með öðrum orðum verið að tefja það að skýrslan yrði gerð og henni var hent út þegar yrði örugglega ekki umræða um hana í tíma fyrir þingkosningar sem voru það ár. Þetta eru, held ég, atriði sem við ættum frekar að hafa í huga þegar við erum að greiða atkvæði um þessa skýrslubeiðni.