156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.

155. mál
[15:49]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það er dálítið skondið að verða vitni að þessu sem er í gangi hérna núna. Hérna koma upp ákveðnir varðhundar fyrir óbreytt fiskveiðistjórnarkerfi og gelta þegar þeim er sigað. Það er sorglegt að vita til þess að fólk eigi ekki að fá að vita hvernig eignarhald er á stærstu 20 fyrirtækjum í landinu. Það er sorglegt ef menn vilja ekki vita hverjir voru handhafar gjafakvótakerfisins í upphafi og hafa átt það fram á þennan dag og eru að græða eins og enginn morgundagur væri. Gjafakvótinn er þannig að eitt tonn af þorski sem menn geta selt kostar 7,5 milljónir. Og talið þið svo um að það sé ekki ríkisstyrkur. Leigið þið kvótann innan ársins (Forseti hringir.) þá getið þið leigt kílóið á 500 kr. plús það sem leigugjaldið er, 28 kr.