eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.
Virðulegur forseti. Mér finnst nú alveg ótrúlegt að hlusta á þessa umræðu hérna. Eru skilaboðin frá þingmeirihlutanum að þær reglur sem við erum með um okkar störf, sem við setjum, að þær skipti engu máli? Eru það skilaboðin? Var einhver hér að ræða um það hvað mönnum finnist um sjávarútveginn eða sjávarútvegskerfið? Skýrslubeiðni, er það umræðan? Ég held að við viljum öll sjá þessar upplýsingar, bara endilega. Eru þetta skilaboðin?
Virðulegi forseti, sem gegnir þessu mikilvæga embætti. Er þetta línan frá ríkisstjórninni, að reglurnar skipti engu máli? Það er enginn að deila um það, það vilja allir sjá þessar upplýsingar, bara sjálfsagt. En ég held að það bara skipti miklu máli að við vitum að þær reglur sem við höfum starfað eftir í mjög langan tíma (Forseti hringir.) — ég hef aldrei upplifað það áður að sjá hv. þingmenn koma og segja: Það skiptir bara engu máli. En þannig þingmeirihluta erum við með núna. Reglurnar (Forseti hringir.) skipta engu máli.