156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.

155. mál
[15:54]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er til siðs hérna að samþykkja skýrslubeiðnir sem koma frá þingmönnum. Við höfum hins vegar á undanförnum mörgum árum oft tekið umræðu um hvort það sé eðlilegt að biðja um skýrslu þegar kannski er verið að biðja um eitthvað allt annað og miklu meira. Og í einhverjum einstaka tilfellum, og þau eru fá, held ég, virðulegi forseti, hefur það endað með því að menn hafa tekið málið til sín og endurskoðað það.

Mér fannst hér verið að brydda upp á umræðu um hvort þetta stæðist þingsköp. Svo fór ég að heyra alls konar hugmyndir um það hvað þessi skýrslubeiðni, sem ég var á leiðinni að fara að samþykkja, ætti að þýða þannig að ég fór bara og kíkti á hana aftur. Þetta eru auðvitað gögn sem eru einhvers staðar til. Ég held að það sé eðlilegt að við samþykkjum beiðnina. En það er eðlilegt að taka þessa umræðu, hvort allt eigi hér heima, hvað heyrir undir þingsköp, hvað er eðlilegt að hægt sé að afgreiða með þeim hætti (Forseti hringir.) og hvaða aðrar leiðir á að fara í samfélaginu. Það er einfaldlega þannig. Ég varð dálítið hissa (Forseti hringir.) á umræðunni, frú forseti, en þingflokkur Framsóknar hyggst styðja þessa skýrslubeiðni.

(Forseti (ÞSv): Forseti vill benda hv. þingmönnum á að fylgja ræðutímanum.)