156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.

155. mál
[15:59]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill af þessu tilefni geta þess, og gerir sér fulla grein fyrir því að enn eru þingmenn á mælendaskrá, að á 151. löggjafarþingi var lögð fram skýrslubeiðni sama efnis. Skýrslubeiðnin var samþykkt í atkvæðagreiðslu hér í þessum þingsal. Síðar á því þingi lagði ráðherra fram skýrslu með efnislegum svörum við spurningum sem fram komu í skýrslubeiðninni. Í inngangi skýrslunnar kemur m.a. fram að komið hafi til skoðunar hvort skýrslubeiðnin varðaði opinbert málefni í skilningi þingskapalaga. Skýrslan var, eins og áður segir, lögð fram undir lok, blálok 151. löggjafarþings.

Þegar kemur að því að meta hvort leyfa eigi skýrslubeiðni til ráðherra verður jafnframt að hafa í huga að réttur þingmanns til að leggja fram slíka beiðni hefur hingað til verið túlkaður rúmt. Að mati forseta verður því nokkuð mikið til að koma ef hafna á skýrslubeiðninni. Telji ráðherra að skýrslubeiðni sé ekki í samræmi við skilyrði þingskapa hefur hann þann kost að taka það upp við Alþingi í samræmi við þá ábyrgð sem hann ber gagnvart þinginu. Í framhaldi af þessu er það niðurstaða forseta að ekki sé rétt að koma í veg fyrir að sú skýrslubeiðni sem hér er á dagskrá verði afgreidd á þessum þingfundi.