156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.

155. mál
[16:00]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Út af orðum hv. þm. Sigmars Guðmundssonar þá vek ég bara athygli á því, og allir geta skoðað ræðu hv. þingmanns, að hann var ekki að færa rök fyrir því í sinni fyrri skýringu, frekar en aðrir hv stjórnarþingmenn, að þetta væri innan ramma reglnanna, hann var ekki að því. Hér er hins vegar verið að tala um allt milli himins og jarðar sem tengist sjávarútvegi; leigukvóta og ég veit ekki hvað og hvað, sem er bara allt hið besta mál. Eftir að hafa hlustað á virðulegan forseta þá sýnist mér að niðurstaðan sé sú að við getum — og það er frétt ef við ætlum ekki að fara eftir reglunum og túlka þetta rúmt — komið með skýrslubeiðnir um nánast hvað sem er. Það er svolítið stór ákvörðun. Ég veit ekki til þess að neinn hér inni sé á móti því að fá upplýsingarnar enda held ég að það sé hægt að nálgast þær með öðrum hætti. Látum það liggja milli hluta. En það er svolítil ákvörðun í þinginu ef það er niðurstaðan að við getum spurt um nánast hvað sem er. Það gæti kannski kallað á nokkurn aukakostnað. En látum það liggja milli hluta.