opinber fjármál.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál; breytingum sem lúta einkum að þeim tölulegu fjármálareglum sem lögin kveða á um.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að ná skuli stjórn á fjármálum ríkisins og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta, m.a. með því að taka upp stöðugleikareglu og stöðva hallarekstur. Í þessum orðum felst skýr ásetningur um að leggja allt kapp á að ná þeim markmiðum sem felast í lögum um opinber fjármál. Ætlunin er að ná þeim með nokkuð öðrum og skilvirkari hætti en gert er ráð fyrir í gildandi lögum. Frumvarpið er lagt fram til þess að hrinda þessu ætlunarverki í framkvæmd.
Forseti. Ástæða er til að nefna hér í upphafi að með frumvarpinu er í sjálfu sér ekki ætlunin að gera róttækar breytingar á sjálfri umgjörð opinberra fjármála. Hún hefur enda í öllum megindráttum reynst vel frá því að lögin tóku gildi 1. janúar 2016. Markmiðið er fremur að efla samspil ríkisfjármála og umsvifa í efnahagslífinu og styrkja enn frekar stefnumörkun í opinberum fjármálum. Nauðsynlegt er að stjórn þessara þátta styðji betur við efnahagslegan stöðugleika og hamli gegn því að opinber fjármál ýti undir efnahagslegt ójafnvægi. Gildir það jafnt um þenslu sem samdrátt. Breytingunum sem lagt er til að gera má skipta í þrennt. Þær snúa í fyrsta lagi að fjármálareglum laganna, í öðru lagi að afleiddum breytingum á ákvæðum laganna um fjármálastefnu og fjármálaáætlun og í þriðja og síðasta lagi að reglum um hlutverk fjármálaráðs.
Forseti. Ég sný mér þá fyrst að breytingum á fjármálareglum laganna. Einn helsti annmarki núverandi fjármálareglna er sá að ef nákvæmum tölulegum markmiðum um afkomu og skuldahlutfall er fylgt út í hörgul krefst það iðulega ráðstafana af hálfu stjórnvalda sem ganga í berhögg við viðtekið hlutverk ríkisfjármála í hagstjórn. Af þessum sökum er lagt til að ný regla, stöðugleikaregl, verði tekin upp fyrir stefnumörkun í ríkisfjármálum. Hún felur í sér að sett er hámark fyrir vexti útgjalda að raungildi í fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Það hámark taki mið af vaxtargetu landsframleiðslu til lengri tíma. Slík regla felur í sér að afkoma ríkissjóðs sveiflist með hagsveiflunni. Samhliða þessu verði afkomuregla laganna felld brott þar sem hún samrýmist ekki vel sveiflujöfnunarvirkni nýju stöðugleikareglunnar. Sama gildi um tölusetta skuldalækkunarreglu laganna í núverandi mynd. Í staðinn verði tekinn upp nýr þáttur í fjármálastefnu sem feli í sér að þegar skuldir eru umfram hámarkið þurfi stjórnvöld að setja fram skýra áætlun um þróun skulda á grundvelli greiningar á því hvernig skilyrði laganna um tölusett skuldahámark verði uppfyllt innan ásættanlegs tíma með hliðsjón af stöðu ríkisfjármála og horfum í efnahagsmálum. Markmiðið með þessum breytingum á fjármálareglunum er að hamla gegn því að opinber fjármál ýti undir efnahagslegt ójafnvægi, hvort sem er þenslu eða samdrátt. Breytt reglusetning um stefnumörkun um afkomu og skuldir gefur jafnframt tilefni til þess að sett verði í lögin skýr ákvæði um hvaða svigrúm stjórnvöld hafi til að hliðra stefnuferlum í fjármálaáætlunum frá því sem áformað er í fjármálastefnu. Slík frávik geta þó aðeins orðið ef efnahagsforsendur í nýjum hagspám á hverjum tíma víkja í teljandi mæli frá þeim forsendum sem upphaflega voru lagðar til grundvallar gildandi fjármálastefnu.
Forseti. Þá sný ég mér að öðrum meginhluta frumvarpsins sem eru nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laganna um fjármálastefnu og fjármálaáætlun til að ná markmiðum breytinganna á fjármálareglunum. Þær fela einkum í sér skýra afmörkun á svigrúmi til að laga stefnumörkunina að breytingum í efnahagsforsendum á hverjum tíma í því skyni að afkomu- og skuldaþróun ríkissjóðs geti ráðist meira af hagsveiflunni í samræmi við hagstjórnarhlutverk ríkisfjármálanna. Hér á landi, líkt og í öðrum ríkjum með sambærilegt fyrirkomulag, var tölulegu fjármálareglunum vikið tímabundið til hliðar í heimsfaraldri kórónuveirunnar. Að óbreyttu taka reglurnar gildi á ný árið 2026. Stjórnvöld, hér á landi sem erlendis, hafa nýtt tækifærin sem af þessum aðstæðum leiða til endurskoðunar og athugunar á því hvort þær tölulegu fjármálareglur sem vikið var til hliðar skapi heppilegustu umgjörðina fyrir opinber fjármál eða hvort aðrar reglur þjóni markmiðum stjórnvalda betur. Núgildandi tölulegar fjármálareglur laganna, þ.e. afkomureglan, skuldareglan og skuldalækkunarreglan, miða að því að tryggja sjálfbærni opinberra fjármála til lengri tíma litið. Engin þeirra stuðlar hins vegar beinlínis að efnahagslegum stöðugleika til skemmri tíma litið umfram það sem leiðir af traustri stöðu opinberra fjármála.
Forseti. Mikilvægt er að styrkja umgjörð opinberra fjármála með því að innleiða tölulega stöðugleikareglu sem er til þess fallin í senn að stuðla að ásættanlegri afkomu og efnahagslegum stöðugleika. Nýja reglan kemur í stað afkomureglunnar. Stöðugleikaregla felur í sér að ófjármögnuðum útgjaldavexti ríkissjóðs eru settar skorður, til að mynda þegar uppsveifla fleytir tímabundið meiri tekjum í ríkissjóð. Á hinn bóginn, þegar tímabundin niðursveifla eða stöðnun verður í hagkerfinu þarf ekki að samtímis að draga saman seglin í ríkisútgjöldum í sama mæli. Gert er ráð fyrir að stöðugleikareglan verði útfærð þannig að undirliggjandi útgjöld A1-hluta ríkissjóðs, að frátöldum fjárfestingum og tilteknum óreglulegum og sveiflukenndum útgjaldaþáttum, megi vaxa að hámarki um 2,0% að raunvirði á ári. Hámarkið tekur mið af mati á horfum um vöxt í framleiðslugetu þjóðarbúsins að jafnaði til lengri tíma litið. Vöxturinn geti þó verið umfram það að teknu tilliti til áhrifa nýrra ráðstafana til aukinnar tekjuöflunar. Á sama hátt felst það í reglunni að ef ráðstafanir draga úr tekjuöflun A1-hluta ríkissjóðs verði svigrúm til útgjaldavaxtar samsvarandi minna.
Forseti. Ég sný mér loks að þriðja þætti breytinganna sem snúa að fjármálaráði. Samkvæmt lögunum um opinber fjármál hefur sjálfstætt fjármálaráð það hlutverk að leggja mat á hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun hlíti fjármálareglunum. Hér eru því lagðar til breytingar á ákvæðum sem lúta að þessu hlutverki ráðsins til að laga það að breytingum á reglunum. Þá er auk þess lagt til að fjármálaráði verði falið að taka að sér nýjan starfsþátt sem felist í því að annast vöktun, greiningar og skýrslugerð varðandi þróun framleiðni í landinu. Hvað hið fyrra varðar er gert ráð fyrir að fjármálaráð rýni og gefi álit á tilteknum þáttum sem tengjast innleiðingu á stöðugleikareglu, svo sem hvort áætlanir samræmist stöðugleikareglu, þ.m.t. tekjuráðstafanir vegna útgjalda umfram regluna, hvort forsendur fyrir hámarki raunvaxtar útgjalda í stöðugleikareglunni samkvæmt mati á langtímavaxtargetu þjóðarbúsins séu raunhæfar, hvort útgjaldaliðir sem undanskildir eru séu viðeigandi, og að síðustu að ráðið rýni og veiti álit á því hvort áætlun stjórnvalda um skuldaþróun virðist geta uppfyllt skilyrði um 30% hámark innan ásættanlegs tíma þegar skuldir eru umfram hámarkið. Komi til þess að víkja þurfi frá markmiðum fjármálastefnu í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að fjármálaráð meti hvort slík frávik samræmist ákvæðinu, þ.e. hvort þau leiði af beinum og óhjákvæmilegum áhrifum breyttra efnahagsforsendna.
Síðari breytingin á hlutverki fjármálaráðs snýr að yfirlýsingu fyrri ríkisstjórnar um aðgerðir til stuðnings kjarasamningum frá mars 2024. Í henni er gert ráð fyrir að komið verði á fót sérfræðingaráði um framleiðni sem muni kortleggja þróun framleiðni og tilheyrandi tölfræði síðustu ára og vera stjórnvöldum til ráðgjafar. Hér er gert ráð fyrir, m.a. í þágu rekstrarhagkvæmni, að fjármálaráð taki verkefnið að sér en ekki verði komið á fót sérstöku framleiðniráði. Þess má geta að danska efnahagsráðið fer með svipað verkefni. Víðtækara hlutverk fjármálaráðs leiðir til öflugri einingar þar sem mannauður og fjármunir eru nýttir betur. Fjármálaráð býr þegar yfir mikilli þekkingu á umgjörð og áskorunum íslenska þjóðarbúsins og opinberra fjármála. Í þessum nýja starfsþætti fjármálaráðs felst að ráðið skilar skýrslu með greiningu á stöðu og horfum um framleiðni og samkeppnishæfni hagkerfisins. Miðað er við að slík skýrsla komi út einu sinni á ári.
Forseti. Að öðru leyti vísa ég til nánari umfjöllunar um þessar breytingar á lögunum um opinber fjármál í greinargerð frumvarpsins og legg til að frumvarpi verði vísað til hv. fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.