opinber fjármál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Auðvitað er hér um að ræða lagabálk sem var alveg gríðarlega mikil bót á sínum tíma. Frumvarpið kom frá þáverandi hæstv. ráðherra, Bjarna Benediktssyni, og hefur að stærstum hluta reynst vel. Auðvitað er þetta eitthvað sem ég fagna að við séum að skoða og kanna hvort við getum gert betur. Ég er hins vegar að reyna að átta mig á þessum breytingum sem hér eru lagðar til sem hafa lengi verið í undirbúningi en það er auðvitað nokkuð pólitískt mat hvernig menn nálgast það. Við sem erum alla vega mín megin í stjórnmálum viljum helst halda aftur af útgjaldavexti stjórnvalda meðan aðrir vilja frekar búa sér til skjól til skattahækkana.
Ef ég skil þetta rétt, virðulegi forseti, vil ég fyrst spyrja hæstv. ráðherra: Eftir breytingarnar, þ.e. varðandi vöxt útgjaldanna, stöðugleikaregluna, þá tekur skilyrðið ekki til útgjalda vegna fjárfestinga, vaxta, lífeyrisskuldbindinga, afskrifta skattkrafna og annarra tapaðra krafna, tjónabóta, meiri háttar náttúruhamfara, ríkisábyrgða, framlaga til Atvinnuleysistryggingasjóðs og framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það sem ég vildi kannski vita í fyrra andsvari er hvernig þetta er valið. Maður sér t.d. að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er þarna inni, sem vekur svolitla athygli af því að hæstv. ráðherra var að tala um, eins og ég skildi hann, að prinsippið væri að það sem væri fjármagnað með skattgreiðslum ætti að vera þarna inni en svo sannarlega er Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fjármagnaður þannig, reyndar Atvinnuleysistryggingasjóður líka og flest sem þarna er. Eins og ég skil þetta er þetta undanskilið og þá er spurningin: Af hverju?