156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

opinber fjármál.

171. mál
[16:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er náttúrlega fleira þarna heldur en bara fjárfestingarnar, þarna eru líka vextir og lífeyrisskuldbindingar, sem ég held að sé nú frekar auðvelt að áætla, og sömuleiðis framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs og framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem ég myndi ætla að væri ekki vandi heldur en gott og vel.

Varðandi skuldalækkunarregluna þá vísaði hæstv. ráðherra í það í svari sínu við hv. þingmann áðan að ástæðan fyrir því að verið er að taka það út að ef skuldahlutfall er hærra en 30% skuli sá hluti sem umfram er lækka að meðaltali á hverju þriggja ára tímabili um a.m.k. 5% á hverju ári, sé sú að það sé ekki æskilegt ef það er samdráttur í hagkerfinu að svona regla sé inni. En af hverju er þá ekki gerð tillaga um að tekið sé sérstaklega á því? Ég myndi nú ætla með svona reglur, og það er hugmyndin með opinberum fjármálum, að þú sért með fyrirkomulag sem ýti undir það að menn greiði niður skuldir. Ef ég skil hæstv. ráðherra rétt vill hann koma í veg fyrir það að menn séu bundnir í báða skó þegar (Forseti hringir.) samdráttur er í hagkerfinu en þegar verulegur samdráttur hefur verið höfum við að vísu tekið þessar reglur úr sambandi.