opinber fjármál.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurningu hans. Varðandi skuldalækkunarreglu, og hann fór nú yfir hvernig hún lítur út í dag, þá geta menn spurt sig í fyrsta lagi hversu mikill bragur er á því að lofa að næsta ríkisstjórn lækki skuldir. Það hefði verið hægt að hafa slíka reglu. Hún hefði þurft að vera nægilega löng til að ná yfir a.m.k. hálfa hagsveiflu þannig að það væri nokkurn veginn tryggt að svigrúm væri til staðar til að bregðast við. Það er óumflýjanlega á næsta kjörtímabili undir öllum skilyrðum og á því er einfaldlega ekki góður bragur að fresta með þeim hætti. Frekar er farin sú leið að fjármálaráði er falið að fara yfir áætlun stjórnvalda um lækkun skulda sem ekki er hægt að víkja undan jákvæðum hreyfingum í hagsveiflunni.
Varðandi síðan þann punkt hv. þingmanns að til standi að greiða niður skuldir þá vil ég kannski minna á að það eru fá dæmi um það hjá ríkjum almennt að skuldir séu greiddar niður. Að jafnaði er það þannig að skuldahlutföll lækka fyrst og fremst vegna þess að hagkerfið stækkar, þ.e. deilitalan stækkar en nefnarinn er óbreyttur. Fyrir því eru auðvitað skynsamlegar skýringar sem ég get farið yfir ef áhugi er fyrir því.