156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

opinber fjármál.

171. mál
[16:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við ræðum þessi mál og förum mjög djúpt í þau því að þetta skiptir miklu máli. Fyrst kannski aðeins um það sem hæstv. ráðherra var að svara, að það væri ekki góður bragur á því að vísa málinu til næstu ríkisstjórnar, en í rauninni gengur þetta út á að við erum að horfa til langs tíma. Hér áður — og ég bara þekki það því að ég var nú varaformaður hv. fjárlaganefndar þegar við innleiddum þetta og sú sem leiddi það starf innan nefndarinnar var fyrrverandi hv. þm. Vigdís Hauksdóttir — við fórum ansi djúpt í þetta á þeim tíma. Þetta gengur út á það að við erum að setja ramma utan um fjármál til þess að takmarka freistnivanda stjórnmálamanna, t.d. rétt fyrir kosningar og annað slíkt. Síðan vísaði hæstv. ráðherra að vísu í að það ætti að koma í staðinn greinargerð um skuldaþróun sem á að vera trúverðug. Auðvitað er þá í rauninni verið að vísa því til næstu ríkisstjórnar. Það er enginn eðlismunur á því. Það er í rauninni nákvæmlega það sama.

Ef menn ætla að fara eftir reglunum, ef reglurnar eiga að skipta einhverju máli þá verða menn eðli máls samkvæmt að fara eftir þeim. Ef menn ætla að breyta ákvörðun síðustu ríkisstjórnar þá þurfa menn því að koma með einhverjar trúverðugar leiðir í staðinn, ef ég skil þessa reglu rétt. Ég held hins vegar, af því að hæstv. ráðherra segir að ríkið hafi almennt ekki verið að lækka skuldirnar sínar heldur, og hann er þá væntanlega að tala um — sem mér finnst vera svolítill útúrsnúningur því að svo sannarlega höfum við séð það, Íslendingar, að okkur tókst að lækka skuldir okkar verulega og ekki bara af því að við vorum að auka tekjurnar. Ég veit að hæstv. ráðherra þekkir þau dæmi bara mjög vel. Við vorum með allt önnur skuldahlutföll bara núna nýlega, bara eftir fjármálahrunið, við þekkjum það og við þekkjum hvernig var tekið á því og þar var svo sannarlega um lækkun skulda að ræða.

Hér áður fyrr voru skuldir ríkisins miklu meiri og vinnubrögðin voru með allt öðrum hætti vegna þess að menn voru kannski — ein af ástæðunum var náttúrlega bara pólitísk staða. Hitt er bara þannig, og ég fullyrði það af því að ég þekki það, að með þessum reglum, þ.e. lögum um opinber fjármál, þá breyttist nálgunin og vinnulagið mjög mikið. Þegar menn þurftu að vinna eftir þessu breytta umhverfi þá hafði það mjög jákvæð áhrif og ég er mjög sáttur við að vera í flokki sem hafði forgöngu um það á sínum tíma.

Við erum hins vegar á þeim stað núna að við erum háskattaland. Þó að við séum háskattaland þá, ef við lítum til fleiri þátta, erum við samt sem áður með mjög margt sem er hagstætt fyrir okkur. Þá er ég að vísa í hvernig, eins og kemur fram í skýrslunni og var kynnt fyrir okkur í fjárlaganefnd, við erum áfram að fá mikinn hóp af fólki inn á vinnumarkaðinn. Við erum ekki enn þá komin á stað eins og margar aðrar þjóðir eru, að vera með mjög óhagstæða aldurssamsetningu þegar kemur að t.d. heilbrigðismálum og lífeyrismálum. Þess vegna er afskaplega mikilvægt að við séum ekki að setja neinar reglur sem gefa stjórnmálamönnum skjól til að hækka skatta og auka ríkisútgjöld og fjármagna það með þeim hætti.

Hugmyndin á bak við opinber fjármál og hugmyndin á bak við þessar reglur er að við séum að líta til lengri tíma. Við erum ekki bara að bjarga okkur ár frá ári með fjárlögum, við neyðumst til að líta alla vega til fimm ára og auðvitað væri miklu betra ef við litum enn þá lengra. Ég er þess vegna með ákveðnar spurningar við fyrstu yfirferð, og auðvitað þarf að fara miklu dýpra í þetta og þetta er þess eðlis að það þarf að skoða þetta vel, en ég er enn þá með ákveðnar spurningar þegar kemur að því hvað er inni í þessu þegar kemur að stöðugleikareglunni. Ég nefndi það hér áðan, og hæstv. ráðherra gerði mikið úr því, að fjárfestingarnar væru þarna sérstaklega og ég get alveg tekið undir með hæstv. ráðherra að það þarf að líta á þær með nokkuð öðrum hætti heldur en hefðbundin útgjöld. En auðvitað getum við áætlað vexti og lífeyrisskuldbindingar og við getum oftast áætlað framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs og svo sannarlega framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Ég held að það skipti máli fyrir okkur að skoða það sérstaklega af hverju þetta er undanskilið stöðugleikareglunni.

Sömuleiðis held ég, og hæstv. ráðherra hefur nú nefnt það og ég er sammála honum, að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, mikilvægara heldur en fyrir aðrar þjóðir af því að við erum lítil þjóð með mikla sérstöðu — þá er ég ekki að tala um lítil, við erum fámenn, við erum á miðju Atlantshafinu. Og þó að við séum minna viðkvæm fyrir sveiflum heldur en við vorum áður — því að það er ekkert rosalega langt síðan allir landsmenn fundu fyrir sveiflum í sjávarútvegi þótt þeir byggju alls ekki í sjávarútvegsþorpum eða neitt. Það hafði bara svo mikil áhrif á á lífskjör í landinu ef sjávarútveginum gekk ekki vel. Auðvitað skiptir sjávarútvegurinn gríðarlega miklu máli núna en það er þó ekkert í samanburði við það sem var áður. Við vorum kannski með tvær stoðir, sjávarútveginn og iðnaðinn og aðallega álið, en núna erum við komin með fleiri stoðir, ferðaþjónustu, hugvitsiðnaðinn, og það er auðvitað gríðarlega mikil breyting. En það breytir því ekki að það borgar sig fyrir okkur sem þjóð að hafa vaðið fyrir neðan okkur og það að hafa vaðið fyrir neðan okkur þýðir að skulda lítið. Við erum búin að sjá það á undanförnum áratugum að það eru alltaf að gerast einhverjir hlutir sem við sjáum ekki fyrir og við erum kannski nákvæmlega á þeim stað núna að það eru miklar blikur á lofti þegar kemur að alþjóðaumhverfinu og harla ólíklegt að við munum sjá eitthvert logn á þeim vettvangi núna á næstu árum og jafnvel áratugum.

Þetta er einhvers konar útfærsla á útgjaldareglu og hún á fyrst og fremst að draga úr sveiflumögnun opinberra fjármála, sem er mjög gott, en það sem ég er hér að leita að er eitthvað í þessu sem dregur úr útgjaldavexti, sem er nú eiginlega kjarni máls. Stjórnmálamenn hafa þá tilhneigingu að auka útgjöld og þess vegna m.a. eru þessar reglur settar, vegna þess að menn segja: Heyrðu, við þurfum að ganga fram til að halda aftur af stjórnmálamönnum sem missa sig með þeim hætti. Við þekkjum dæmi um lönd sem eru ekkert langt frá okkur, við erum að horfa á lönd sem eru tiltölulega nálægt okkur sem eru í miklum vanda vegna þess að menn hafa ekki getað haldið aftur af sér þegar að því kemur. Þegar við munum fara yfir þetta í hv. fjárlaganefnd þá mun ég leita eftir því hvað er þarna sem sannfærir mig um að við séum að breyta í þá veru að við séum að koma hömlum á útgjöld hins opinbera.

Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að við erum háskattaríki og við erum samt sem áður með hagstæða aldurssamsetningu. Síðan erum við, sem kannski mun breytast þó svo að útgjöld til varnarmála — í það minnsta jukust útgjöld til varnarmála gríðarlega í minni tíð sem utanríkisráðherra. Það er samt sem áður bara dropi í hafið miðað við þau lönd sem við erum að bera okkur saman við. Það gæti breyst. En þegar aldurssamsetningin mun líka breytast, og hún mun breytast, þá verður það auðvitað gríðarlega mikil pressa á opinbera sjóði. Öll viljum við gera vel við þá sem þurfa t.d. á heilbrigðisþjónustu að halda. Það er nú bara þannig að því eldra sem fólk er, því meiri líkur eru á því að það þurfi á heilbrigðisþjónustu að halda. Það er bara mjög einfalt. Þú þarft svona almennt á heilbrigðisþjónustu að halda á fyrstu mánuðum ævi þinnar eða fyrstu vikum og síðan þegar þú ert kominn á virðulegan aldur. Þannig að ég held að það sé gríðarlegt atriði að líta til þess að við séum hér að breyta til að koma hömlum á útgjöld ríkissjóðs, að við séum að líta til þess að við séum að koma sömuleiðis með hvata eða skyldur til að greiða niður skuldir. Við þurfum að hafa það í huga. Ég held að það sé því miður bjartsýni að geta sett það í reglur að það megi ekki hækka skatta, ég held að það yrði erfitt og mig dreymir ekki þann draum að koma slíkri reglu á en það liggur alveg fyrir að ef við höldum áfram að auka útgjöld og ef við greiðum ekki niður skuldir þá þurfum við að hækka skatta.

Hér var aðeins rætt í andsvörum um hagræðingaraðgerðir og ég styð það að hæstv. ríkisstjórn komi fram með tillögur — sem hún að vísu er reyndar ekki komin fram með en við héldum fyrst að hún hefði komið fram með. Það er búið að skjóta flestar þær tillögur, eins og ég skil málið, sem hafa komið fram úr hagræðingarhópnum. Af því að það var nú gott fólk í þessum hagræðingarhópi þá olli það mér reyndar vonbrigðum að það hefur augljóslega ekki fengið svigrúm til að koma með róttækari hugmyndir. Það er alveg ljóst að það er mikið verk að vinna þegar kemur að því að hagræða í rekstri hins opinbera og það olli mér miklum vonbrigðum. Ég vona að þetta sé misskilningur en ég gat ekki heyrt annað en að menn hefðu skotið niður þá tillögu sem myndi hafa mest áhrif og það er breyting á lögum um opinbera starfsmenn. Staðreyndin er sú, virðulegi forseti, að meðan aðrar þjóðir fóru þá leið þegar fjölgaði opinberum starfsmönnum, sem hefur gerst alls staðar í þeim heimshluta sem við berum okkur saman við, þá fóru menn í að breyta lögum um opinbera starfsmenn með þeim hætti að gera það líkara því sem gerist á almennum markaði — nema í einu landi, það var á Íslandi. Ríkisendurskoðun er búin að skrifa alla vega tvær skýrslur og ég held þeir nenni ekki að skrifa fleiri enda engin ástæða til. Við fórum þá leið að halda lögunum og reyndar þrengja þau, sem gerir það að verkum að sveigjanleikinn er gríðarlega lítill því að langstærsti hlutinn þegar kemur að opinberum rekstri er launakostnaðurinn og allir sem hafa komið nálægt rekstri sjá hversu meingallað þetta fyrirkomulag er. Það gagnast engum. Það gagnast ekki þeim sem þurfa á þjónustunni að halda, það gagnast svo sannarlega ekki skattgreiðendum og það gagnast heldur ekki opinberum starfsmönnum. Opinberir starfsmenn, margir hverjir og kannski langflesti — ég veit ekki hvert hlutfallið er en það er enginn vafi að það er mikið af alveg afburða opinberum starfsmönnum, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, og það er ekki gott að hafa kerfi sem er ekki heldur að umbuna þeim sem standa sig vel.

Virðulegi forseti. Ég bara fagna því að þetta mál sé komið fram og ég hlakka til að takast á við það í hv. fjárlaganefnd. Ég lít sérstaklega til þess hvaða áhrif þetta hefur til að takmarka útgjaldaaukningu ríkisins. Helst vildi ég sjá til þess að þetta myndi hafa mikinn hvata til að minnka útgjöld ríkisins. Ég mun líta sérstaklega til þess hvaða hvatar eru og vonandi skyldur. Þó að ég skilji þau rök hæstv. ráðherra að það sé erfitt þegar um er að ræða niðursveiflu í hagsveiflunni að greiða niður skuldir nákvæmlega á þeim tíma þá myndi ég nú ætla að við gætum fundið einhvern flöt á því. Það olli mér pínu áhyggjum en ég kýs að túlka það með jákvæðum hætti þegar hann talaði um að lönd sem við bærum okkur saman við væru ekki að greiða niður skuldir. Við þurfum að greiða niður skuldir. Við höfum gert það og það hefur ekki bara verið gert með stækkun efnahagslífsins þó ég geri nú ráð fyrir að hæstv. ráðherra sé að vísa til þess að það sé mikill vilji til þess að hið opinbera leiki hlutverk á skuldabréfamarkaði og annars staðar.

Virðulegi forseti. Þetta tvennt er það sem ég mun líta sérstaklega til, þ.e. það hvernig við getum takmarkað útgjaldaaukningu hins opinbera og helst haldið virkilega aftur af henni og sömuleiðis hvaða reglur og hvatar eru til þess að við lækkum skuldir, hvort sem það er með lækkun hlutfalls eða það sem við þurfum helst að gera núna, að við þurfum að minnka skuldabyrðina og allt sem því tilheyrir.