156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

opinber fjármál.

171. mál
[17:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. En bara ef hæstv. ráðherra sveið eitthvað að þeir sem hér tóku þátt í umræðunni hafi ekkert farið að hagræða þá hvet ég hæstv. ráðherra til að kynna sér málin betur. Og reyndar í títtnefndum hagræðingartillögum, sem fer í taugarnar á hæstv. ráðherra að hér séu gagnrýndar, þá er nú bara beint farið í það sem sá sem hér stendur var nú að vinna að sem ráðherra og tók nú tíu stofnanir og gerði þær að fimm. Sömuleiðis þegar kom að opinberum innkaupum hafði ég forgöngu um það og það var fyrsta ráðuneytið sem gerði sérstakan samning við Ríkiskaup um að taka út allar stofnanir og ráðuneyti til að vinna að því. Ég gerði það sama sem heilbrigðisráðherra, utanríkisráðherra. Þannig að ef hæstv. ráðherra kemur hér og heldur að hann sé fyrsti maðurinn sem hefur staðið í hagræðingu, það á eftir að koma í ljós hvað verður af því og ég mun hvetja hæstv. ráðherra í því, að hann sé fyrsti stjórnmálamaðurinn sem stendur fyrir hagræðingu í ríkisrekstri þá er það er mikill misskilningur og ég bið bara hæstv. ráðherra aðeins að halda aftur af sér í því. Ég geri ráð fyrir því — af því að hæstv. ráðherra skrifaði hér í öðru lífi um, ef ég man rétt, hæstv. ráðherra leiðréttir mig ef ég hef rangt fyrir mér, að það væri efnahagsleg sóun að fara í strandveiðar — efnahagsleg sóun. Ég hef nú ekkert verið að velta hæstv. ráðherra mikið upp úr því en ef menn ætla að vera heilagri en páfinn þegar kemur að því og vanda hér um við þingmenn sem hafa gegnt stöðu ráðherra þá verður að segjast eins og er að þarna fer ekki alveg saman hljóð og mynd. En aftur: Ég fagna því að hæstv. ráðherra sé kominn með þetta frumvarp og vonandi náum við góðri niðurstöðu um það og þeim markmiðum að halda aftur af útgjöldum ríkisins.