156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

opinber fjármál.

171. mál
[17:05]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú svolítið erfitt að taka þetta ekki til sín. Við vorum þrjú sem tókum þátt í þessari umræðu, það var ekki eins og þetta væru 30 manns sem voru hérna og það eru bara tvö sem hafa gegnt ráðherraembætti þannig að það er nú erfitt að misskilja það.

Ég vil líka taka það fram að ég var hér á vettvangi 2016 þegar þetta var gert. Þá börðumst ég og sérstaklega fyrrverandi hv. þm. Vigdís Hauksdóttir og mjög margir fleiri, m.a. allir í mínum flokki, fyrir því að við værum með betri og strangari reglur þegar kæmi að útgjaldareglu. Það komst bara ekki í gegn þá, því miður, þannig að ég fagna því að það komi hér. Til að svara — reyndar er það þannig í andsvörum að ég á að spyrja hæstv. ráðherra en það er sjálfsagt fyrir mig að svara spurningum og ég fagna því. Hefur það gengið nógu vel að halda aftur af útgjaldavexti hins opinbera? Nei, alls ekki. Auðvitað getur maður alltaf borið sig saman við sveitarfélögin og komist eitthvað betur frá því, af því að hæstv. ráðherra er nú í flokki sem hefur stýrt Reykjavíkurborg. Það er ekki glæsilegt ástandið þar. En nei, þetta hefur alls ekki verið nægilegt forgangsmál og það hefur verið mjög erfitt að ná pólitískri samstöðu um það innan ríkisstjórna. Ég var líka í ríkisstjórn með Viðreisn, ég fann ekki fyrir þeim vilja þar. Og bara svo það sé sagt þá er ég ekki að gagnrýna það að hæstv. ráðherra komi fram með frumvarpið. Ég heyrði það á lokaorðum hans að við erum sammála og þá skulum við bara vinna saman að því að hefta útgjaldavöxtinn og lækka skuldir ríkisins. Af nógu er að taka. En af því að hæstv. ráðherra er svona nýkominn hingað; fram til þessa höfum við ekkert verið rosalega mörg sem erum mjög ákveðin í þessu en vonandi er það að breytast. Og ef hæstv. ráðherra kemur hér með góðar tillögur, hvort sem er varðandi umgjörð opinberra fjármála og/eða hagræðingartillögur, þá á hann bandamenn hér.