156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:23]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta, virðulegi forseti, er sú að ég man þetta alveg ágætlega og var í ríkisstjórn þegar bæði útboðin fóru fram. Fyrra útboðið gekk bara mjög vel, var bara mjög einfalt og skýrt. En seinna fóru menn nákvæmlega í þessa vegferð og færðu rök fyrir því að það væri gott að finna einhverja séra Jóna sem væru betri en hinir Jónarnir þegar kæmi að því að kaupa hlut í bankanum. Og þetta bara veldur mér áhyggjum því að ég held að það sé engin ástæða til að finna upp hjólið. Þetta gekk mjög vel og ég veit ekki til þess að nein vandræði hafi komið í kjölfar fyrsta útboðsins. Ég fylgist nú, held ég, bara þokkalega með. Ég veit ekki til þess að það hafi komið upp neitt neyðarástand. Allir fengu að kaupa eftir mjög skýrum reglum og það var ekkert verið að leita að einhverjum séra Jónum sem væru ákjósanlegri en aðrir því að þetta er vandmeðfarið. Mér finnst mjög mikilvægt að það verði enginn skuggi á þessari sölu og við búum ekki til neina tortryggni í kringum þetta.

Svo geta menn deilt um það hvort tortryggnin og deilurnar sem voru í seinna útboðinu hafi átt rétt á sér. Það er seinni tíma mál fyrir aðila að fara yfir það. En ég er enn þá á þeim stað að mér fannst fyrsta fyrirkomulagið bara ganga mjög vel þar sem menn voru ekki að gera upp á milli fólks og fyrirtækja þegar kom að því að kaupa í bankanum — auðvitað með öllum, getum við sagt, almennum fyrirvörum — þannig að ég hef áhyggjur af því að menn ætli að fara þessa leið.