156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og sömuleiðis svörin. Í grunninn er þetta þannig að við erum hér með eign og ríkið er mjög stór eigandi að fjármálafyrirtækjum á Íslandi. Nú er það alltaf þannig að þegar gengur vel hjá fjármálafyrirtækjunum þá segja menn: Af hverju á ríkið þetta bara ekki allt saman og tekur arðgreiðslurnar? En þetta er áhætturekstur. Við höfum tilhneigingu til að gleyma því að almenna reglan var sú að ríkið var í alls konar rekstri, það var sementsverksmiðja, áburðarverksmiðja og skipaútgerð. Stundum var þetta þannig vegna þess að aðrir voru ekki tilbúnir að gera þetta og menn töldu að það væri þjóðhagslega hagkvæmt að fara í það. En síðan þróaðist þetta svolítið í það, þegar það gengur vel í viðkomandi atvinnurekstri og sérstaklega þegar hann er verndaður fyrir samkeppni, að mörgum stjórnmálamönnum fannst það bara ótrúlega góð hugmynd að þannig væri það um alla framtíð.

Við fundum hressilega fyrir því, Íslendingar, þegar hér kom alþjóðleg fjármálakreppa fyrir ekki svo löngu síðan, þá allt í einu rann upp fyrir okkur að það er ekki alltaf hagnaður og gleði í rekstri fjármálafyrirtækja. Við vitum að það verður fjármálakreppa aftur. Það veit bara enginn hvenær. Almenna reglan er sú að eftir fjármálakreppur þá gerum við allar þær ráðstafanir sem við getum til að koma í veg fyrir að hún gerist aftur, ef hún er líkleg til að gerast aftur þá erum við búin að hnýta lausa enda og ættum að vera vel undir það búin. En vandinn er sá að þær hafa tilhneigingu til að vera öðruvísi í hvert skipti. Annars myndum við væntanlega búa í hinum fullkomna fjármálaheimi.

En ég fagna því og það er mjög skynsamlegt að hæstv. ríkisstjórn ætlar að fara að selja þessa eign ríkisins. Eins og kemur fram í frumvarpinu og í máli hæstv. ráðherra erum við hér að lækka skuldir ríkisins með einföldum hætti. En hins vegar skiptir mjög miklu máli, og ég veit alveg að það er vilji hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar, alveg eins og þegar menn voru að einkavæða Íslandsbanka, að gera þetta eins vel og mögulegt er, hafa þetta hlutlægt og gagnsætt og þannig að sem minnstar deilur verði um þetta.

Ég vona að markmiðið sé líka það að sem flestir eigi í viðkomandi fyrirtækjum. Það er markmið í mínum huga að almenningur eigi í fyrirtækjunum í landinu. Auðvitað má segja að almenningur geri það í gegnum lífeyrissjóðina, en það má hins vegar færa rök fyrir því að lífeyrissjóðirnir séu orðnir mjög stórir, jafnvel of stórir þegar kemur að fyrirtækjum í landinu. Reyndar er það mín skoðun að þeir séu of stórir. Ég hef áhyggjur af því að við séum með of mörg egg í sömu körfunni því að lífeyrissjóðirnir eru ekkert annað en sparnaðurinn okkar. Það eru fjármunirnir sem hinn almenni borgari þarf að nota til að lifa af þegar hann er hættur að vinna. Við erum, svo ég setji þetta í samhengi, jafn fjölmenn og Leicester, sem er nú ekki mjög stór borg í Bretlandi. Ef einhver þar myndi segja: Við búum í Leicester, við eigum eignirnar í Leicester, við vinnum í Leicester og við ætlum að hafa allan sparnaðinn okkar í Leicester líka, þá held ég að viðkomandi yrði blásinn út af vellinum. En ég hef áhyggjur af því að það sé að gerast hér með lífeyrissjóðina. Ég minni á það að þegar alþjóðlega fjármálahrunið varð á sínum tíma þá var tvennt gríðarlega gott, annars vegar að það var búið að greiða niður skuldir ríkissjóðs og hins vegar að lífeyrissjóðirnir áttu þó nokkurn hluta af sínum eignum annars staðar en hér á Íslandi. Ef hvorugt af þessu hefði verið staðreynd þá hefði ég ekki boðið í stöðuna á Íslandi.

Áhyggjur mínar, eins og ég nefndi hér í andsvörum, eru hlutlæg skilyrði d-liðar í 1. gr. og eftirfarandi atriði eru einnig nefnd í greinargerð. Númer eitt er að stærri pantanir munu hafa forgang yfir minni og númer tvö að rökstuðningur söluaðila, þ.e. ríkisins, um val á aðilum í tilboðsbók C, skuli borinn undir fjármálaráðgjafa ríkisins í útboðinu sem staðfestir nálgunina. Þrátt fyrir það þá veitir frumvarpið ráðherra endanlegt ákvörðunarvald og heimild til að úthluta hlutum á grundvelli „hagsmuna ríkisins“ sem gefur ráðherra mikið svigrúm til að meta hverjir teljast hæfir og hverjir ekki. Svo á að fjölga seldum hlutum í C-bók ef eftirspurn er umfram grunnmat.

Ég er aðdáandi fyrsta útboðsins og mér finnst alltaf svolítið kostuleg umræðan þegar menn eru að spyrja: Var þetta selt á undirverði eða yfirverði? Við hvað eru menn að miða? Eftir útboð númer tvö, sem var gagnrýnt mjög, var það alla vega þannig ef ég man það rétt, hæstv. ráðherra man það kannski betur, að verðið hafi lækkað í kjölfarið. Þá hafa menn væntanlega selt á yfirverði en svo er bara spurning hver punktstaðan er í því. Ég held að þú getir aldrei fundið hina fullkomnu leið í því og ég held að hvorki hæstv. núverandi ráðherra né þeir sem á undan komu hafi haft neitt annað markmið en að gæta hagsmuna ríkisins og almennings og sjá til þess að hér sé heilbrigt og gott fjármálakerfi. Mér finnst langsótt þegar það er verið að gagnrýna þá fyrir það hverjar sveiflurnar verða síðan í kjölfarið. Þeir geta ekki ráðið því.

Þetta frumvarp fer ekki í þá nefnd sem ég sit í. Ég heyrði það á hæstv. ráðherra að það væri ekki nauðsynlegt að upplýsa þingnefndir af því að fyrirkomulagið yrði svo gott. Ég set spurningarmerki við það. Ég held að það gæti kallað á, þó ekki væri annað, tortryggni, bara það eitt. Ég held að meiri upplýsingar fyrir þingið og þingnefndir séu betri, jafnvel þótt menn telji sig hafa búið til gott fyrirkomulag. Ég hef síðan áhyggjur af því og ég veit að hæstv. ráðherra var kannski ekki alveg sáttur við upplegg mitt í því, en það er samt sem áður alltaf þannig að þegar menn fara leiðir eins og þær — ég er ekkert búa til neina samsæriskenningu eða halda því fram að það sé af neinu öðru en góðum ástæðum — að draga fjárfesta í dilka þá býður það upp á gagnrýni og jafnvel tortryggni. Þess vegna vísaði ég í Jón og séra Jón. Auðvitað er hið fullkomna fyrirkomulag ekki til í þessu frekar en annað í mannheimum. En ég mun fylgjast með þessu máli, þetta er stórt mál, og mynda mér skoðun á því, þetta er náttúrlega bara í 1. umræðu. En ég hef alltaf áhyggjur af því þegar menn eru að draga fjárfesta í dilka.

Það var svolítið kaldhæðnislegt, virðulegi forseti — nú var það svo sannarlega þannig að menn voru bara að nálgast þetta með hlutlægum hætti, að vera með fagfjárfesta sem máttu kaupa með einhverjum öðrum hætti en einhverjir aðrir — að einn fagfjárfestir var með nafnið á fyrirtækinu sínu Bananalýðveldi ehf., ef ég man rétt. Það var svolítið kaldhæðnislegt. Nú getur vel verið að þetta hafi verið einn besti fagfjárfestir sem Ísland hefur séð, ég hef ekki hugmynd um það. En nafnið á félaginu vakti ekki upp þær tilfinningar. Síðan var það þannig þegar menn skoðuðu fagfjárfestana þá sáu þeir bara, af því að þetta var allt saman birt sem betur fer, að þetta voru nú bara menn og konur af holdi og blóði, jafn magnað og það var. Þessir fagfjárfestar voru þannig, þetta var bara fólk. Ég held að vísu að á bak við allt þetta sé nú bara fólk.

Ef menn ætla sér það með öllum tiltækum ráðum að selja erlendum aðilum, sem ég veit ekki hvort væri heimilt að gera, þá eiga menn að segja það; ef menn vilja að einhverjir aðrir aðilar eignist þetta þá verða menn bara að vera skýrir í því. Ég held að við getum verið sammála um það og hæstv. ráðherra segir að það sé eðlilegt að finna ákjósanlega fjárfesta fyrir fram með markaðsþreifingum. Já, en ég lofa því alla vega ekki að allir séu sammála um það hverjir séu ákjósanlegir fjárfestar. Ég get ekki lofað hæstv. ráðherra því. Ég veit að hæstv. ráðherra var ekkert að biðja mig um það. En þetta, að ríkið ætli að finna ákjósanlega fjárfesta fyrir fram með markaðsþreifingum, held ég að gæti orðið umdeilt. Það er svo magnað með fólk að það er alls ekki sammála um hvað sé ákjósanlegt. Ég held að ég geti alveg fullyrt það. Það sem sumir hv. þingmenn myndu telja ákjósanlegt væru aðrir bara algjörlega ósammála um. Ég nefndi lífeyrissjóðina. Er það ákjósanlegt að þeir verði stærri aðilar á íslenskum fjármálamarkaði? Ég veit það ekki. Ég held að það séu mismunandi skoðanir á því. Einu sinni var nú einhverjum erlendum aðila seldur banki, sparisjóður sem týndist og enginn hefur fundið aftur í Þýskalandi. Ég veit ekki, var það ákjósanlegur fjárfestir? Ég kann ekki að segja frá því, ég ætla ekki að tala mig út um það hér. Ég veit ekki alveg hvaða mælistiku menn ætla að setja á þetta, hvort sem það eru útlendingar eða aðrir. Útlendingar, ég hef kynnst þeim svolítið. Þeir eru líka fólk, það er magnað, af holdi og blóði. Reyndar eru þeir alveg eins og við Íslendingar þegar maður kynnist þeim og þar af leiðandi með kosti og galla.

Svo að ég taki þetta saman, virðulegur forseti: Er ég ánægður með að hér eigi að fara að selja hluti í Íslandsbanka? Já, mjög. Mun ég styðja það? Já, ég mun gera það. Hef ég áhyggjur af því að það sé verið að draga fjárfesta í dilka og velja út einhverja ákjósanlega? Já, ég hef áhyggjur af því. Ég held að það gæti orðið snúið. Ætla ég mönnum eitthvað misjafnt í þessu? Nei, nei, ég er ekkert að því. Það er ekkert svoleiðis. Ég veit að þeir sem seldu í seinna útboðinu ætluðu sér líka bara að gera þetta eins vel og hægt er. En við munum hvernig sú umræða var, óvægin og ekki alveg sanngjörn. En ég held að ef menn hefðu haldið áfram með það fyrirkomulag sem var í byrjun þá hefðu menn ekki lent í því.

Hins vegar er gott að þetta mál sé komið fram. Hæstv. ráðherra kallar eftir því að það verði klárað hratt og ég held að það sé bara mjög mikilvægt að þingið vinni hratt og örugglega en þó held ég að það sé augljóst að menn þurfa auðvitað að skoða þessi mál vel. Ég held að það sé líka mjög mikilvægt, af því að menn eru að tala um að hafa þetta opið og gagnsætt, sem ég vil trúa, að hv. þingnefndir geti fylgst með málinu á öllum stigum. Ég held að ekki væri góður bragur á því og alls ekki í samræmi við þau markmið að hafa opið og gagnsætt ferli ef menn ætla með einhverjum hætti að takmarka aðgengi hv. þingnefnda eða þingsins að þessu söluferli af því að það eru ekki bara hagsmunir okkar að það gangi vel vegna þess að við erum að hugsa um hagsmuni ríkissjóðs og við viljum greiða niður skuldir. Það skiptir líka gríðarlega miklu máli að þegar kemur að því að við seljum hluti ríkisins þá sé það þannig gert að það sé trúverðugt og eins mikið hafið yfir gagnrýni og hægt er, þó að það sé aldrei hægt að koma í veg fyrir hana, og það sé hægt að fara í það verk því að það þarf að selja mikið af eignum ríkisins. Ríkið er alla jafna ekki góður eigandi. Sumt eigum við alls ekki að selja. Ég nefni t.d. Landsvirkjun sem við eigum ekki að selja, ekki krónu í, okkur Sjálfstæðismönnum er stundum núið um nasir að vilja það en það er ekki okkar stefna. En Íslandsbanki er sannarlega fyrirtæki á samkeppnismarkaði og það eru augljósir hagsmunir ríkisins og almennings að við seljum hann. Það er líka afskaplega mikilvægt að það gangi vel fyrir sig og við Sjálfstæðismenn munum gera það sem við getum til að hjálpa til við það, en ég hef hér dregið upp í þessari stuttu ræðu það sem ég hef áhyggjur af í kynningu hæstv. ráðherra. En ég nota nú tækifærið í lokin og þakka honum enn og aftur fyrir að koma með þetta mál og ríkisstjórninni fyrir að fara í þetta verk.