156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni sem hefur tekið þátt í umræðu um þetta mál fyrir hans ágætu sjónarmið og fyrir að rifja upp fyrir okkur af hverju við leggjum svona ríka áherslu á að þetta ferli sé faglegt og gagnsætt. Sporin hræða, jafnvel í tilfellum þar sem niðurstaðan var ríkinu ekkert endilega óhagstæð. Ég vil undirstrika það sem ég sagði hér í andsvari við hv. þingmann, að það er auðvitað langsótt að túlka það með þeim hætti að þessi flokkun fjárfesta feli í sér forgang. Það er nákvæmlega þveröfugt við það sem hún gerir. Flokkunin felur í sér forgang almennings og annan forgang almennra fagfjárfesta og síðan er síðasti hópurinn sem rekur þá lestina — og jafnan þegar menn tala um Jóna og séra Jóna á Íslandi þá er nú séra Jón sá sem nýtur forgangs, þannig að þá er það almenningur sem er í því hlutverki og þessir fagfjárfestar sem koma síðastir eru í hlutverki hins almenna Jóns.

Þegar kemur síðan að mati á fjárfestunum og kynningu meðal þeirra þá vil ég undirstrika aftur að um er að ræða eftirlitsskylda aðila á fjármálamarkaði, sem um gilda alveg sérstakar reglur, sem eru með meira en 70 milljarða af fjárfestingum og eru að fjárfesta í eigin nafni. Í stuttu máli má segja að einu innlendu aðilarnir sem uppfylla þessi skilyrði séu lífeyrissjóðirnir. Það eru auðvitað erlendir aðilar sem hefðu hugsanlega áhuga á þessu. Ég vék að því í andsvörum hér áðan að stærsta áhyggjuefnið að þessu sinni er fyrst og fremst hvort eftirspurnin verði í samræmi við vonir okkar sem eru auðvitað að ljúka söluferlinu á Íslandsbanka. Þrátt fyrir aðdáun mína og annarra sem hér hafa tekið til máls á fyrsta hlutafjárútboði Íslandsbanka þá er eðlisólíkt að selja í fyrsta skipti, þegar verð fyrir vöruna er ekki til á einhvers konar fyrirframákveðnu gengi sem að jafnaði er valið til að tryggja eftirspurn, og að selja vöru sem er á markaðnum í dag og hægt er að kaupa á markaðnum í dag. Þá er hættan sú að áhugi almennings verði minni. Reynist það rangt yrði enginn glaðari en maðurinn sem stendur hér. Reynist það rétt tel ég skynsamlegt að gera þessa breytingu á lögunum þannig að við tryggjum eftir megni eftirspurn í útboðinu.

(Forseti (IngÞ): Forseti vill biðjast afsökunar á að klukkan hafi verið með vandræði í hérna í ræðu.)