ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Herra forseti. Það er nú bara þannig að maður breytir ekki sögunni, það er bara þannig. Og ef það er að úthúða að fara yfir sögu Sjálfstæðisflokksins og fjármálakerfisins þá finnst mér það nú kannski vera harður dómur um bæði fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins og einkavæðinguna í byrjun aldarinnar. Það var ekki ég sem felldi þennan dóm, alls ekki. Það var hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Ef hann tekur þessa sögu sem einhverja úthúðun þá er það bara þannig. En það liggur alveg fyrir að það var búið að taka ákvörðun um þessa sölu síðastliðið haust og það var búið að gera ráð fyrir því í fjárlögum þannig að þegar Flokkur fólksins tekur þátt í stjórnarmyndunarviðræðum þá er það alveg ljóst að að einhverju leyti var þetta búið. Við stóðum frammi fyrir orðnum hlut. En það er ekki þar með sagt að við ætlum þá ekki að gera vel varðandi þær fjármálastofnanir sem eftir eru í eigu hins opinbera. Við munum beita okkar kröftum til þess að horfa til þess að ná niður kostnaði og gera þetta með hagkvæmum hætti, þá á ég við Landsbankann, reksturinn á honum, þannig að við náum fram einhverju í ætt við samfélagsbanka. Það er auðvitað ekkert eðlilegt, þó að kannski Sjálfstæðisflokknum finnist það, að það séu gríðarlegir fjármunir í vaxtamun og bankakostnað sem almenningur og fyrirtæki þurfa að greiða. En við í Flokki fólksins viljum miklu frekar hafa þessa fjármuni og þennan kraft hjá atvinnulífinu og almenningi heldur en inni í þessum stofnunum.