ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Forseti. Ég kem hér öðru sinni til að loka umræðunni. Það er mér bæði ljúft og skylt, enda lífgaðist umræðan heldur eftir að ég hafði lokað henni í fyrra skiptið og kannski er þetta bara leiðin til að fá líflegar umræður um eins mikilvægt málefni og hér um ræðir. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem bættu sér á mælendaskrána fyrir þeirra hreint ágætu ábendingar og spurningar, og reyni að víkja að þeim, og sérstaklega hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni varðandi fyrirkomulag söluferlisins og hvers vegna ekki er gert ráð fyrir að það komi aftur til meðferðar þingsins. Markmiðið er að ákvæði laganna séu nokkurn veginn tæmandi um nákvæmlega hvernig að þessu verður staðið, einmitt í því sjónarmiði að ferlið sé gagnsætt og til að tryggja að við byrjum að byggja upp traust.
Ég, eins og hv. þingmenn taka kannski eftir, geri nú ekki mikið af því að rifja upp fortíðina en það er mikilvægt að við lærum af henni. Það er mjög mikilvægt að þau skref sem við stígum við að selja eignir ríkisins, sérstaklega eins verðmætar eignir og eignarhluturinn í Íslandsbanka er, sé hafið yfir allan vafa. Mér er algerlega sama úr hvaða flokki athugasemdir koma, ég hlusta á þær allar af athygli vegna þess að það er okkur mjög mikið lífsspursmál að byggja upp traust í garð ferla ríkisins.
Í því sjónarmiði hefur kannski fyrst og fremst verið vikið að C-bókinni og nálguninni þar. Ég vil ítreka við hv. þingmenn að hér er um að ræða þá aðila sem lúta eftirliti stjórnvalda, þ.e. þá er ekki verið að endurtaka mistök fortíðarinnar um að þetta séu einhverjir handvaldir aðilar sem uppfylli það skilyrði eitt að geta flokkast sem erlendir heldur er hér um þá aðila eina að ræða sem eru sérhæfðir fjárfestingaraðilar með stóran efnahagsreikning sem eru að gera tilboð fyrir eigin reikning og eru í dag eftirlitsskyldir sem slíkir. Það er sérstaklega vikið að því í lögunum og ég vakti athygli á því í ræðunni þegar ég kynnti efni laganna að allt val milli þessara aðila, öll samskipti við þessa aðila yrðu skjalfest og að valið væri málefnalegt og rökstutt og sá rökstuðningur væri aðgengilegur að ferlinu loknu og Ríkisendurskoðun myndi fara yfir hann. Þetta er gert til þess að stuðla að því sem við erum öll hér sammála um að þurfi að gerast, þ.e. að endurreisa trúverðugleika þessarar stofnunar og míns ráðuneytis í því að stýra sölu ríkiseigna.
Ég vil því ítreka þakkir mínar til þingmanna fyrir að hafa hleypt nýju lífi í umræðuna eftir að ég taldi henni lokið. Þetta var mjög mikilvægt og er tími sem er vel varið. Ég vil líka brýna fyrir hv. efnahags- og viðskiptanefnd að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem hér komu fram og taka skýrt til sín það mikilvæga hlutverk sem er að ganga þannig frá lögunum þegar þau fara héðan að eftir þeim sé hægt að starfa í því sjónarmiði að ná árangri í sölunni, sem C-bókin snýst um. Ég var mjög glaður að heyra sjónarmið hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um muninn á þessu ferli og fyrri ferlum en líka það að öll þau sjónarmið sem verða viðhöfð við það (Forseti hringir.) að velja milli aðila þar, gerist þess þörf, séu gegnsæ, uppi á borðinu, skjalfest og háð endurskoðun.