156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[18:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég skammast mín ekkert fyrir að ræða þetta mál, þetta er af þeirri stærðargráðu. En það er margt sem hefur komið á óvart í þessari umræðu og ég er að reyna að vinna úr tíðindum kvöldsins um afstöðu Flokks fólksins. Mér finnst þetta ekki alveg vera skýrt og hvet hv. þm. Sigurjón Þórðarson til að skýra mál sitt betur; það var ekkert hægt að skilja hann öðruvísi en svo að hér værum við, með nýrri ríkisstjórn, að sjá miklar breytingar á Landsbankanum í átt að samfélagsbanka. En það er einhver sundrung í stjórnarliðinu, þessu samhenta stjórnarliði, því að hæstv. fjármálaráðherra er bara ekkert þar, hann er bara ekkert þar. Svo hlýtur líka, af því að hv. þm. Sigurjón Þórðarson var ekki jafn einarður og skýr um samfélagsbankann í seinni ræðu heldur talaði um að nú ætti að fara að reka þessar fjármálastofnanir með hagkvæmum hætti — það er ekkert hægt að túlka það öðruvísi en svo að það hafi ekki verið gert með hagkvæmum hætti fram til þessa sem hlýtur líka að kalla á spurningar.

Það er augljóst að það er sundrung innan stjórnarliðsins og svolítið erfitt að lesa í það. En það er alls ekki samhljómur hér þegar við hlustum á hv. þingmann og hæstv. ráðherra ræða þessi mál. Það er ekki gott vegna þess að það skiptir máli að við náum góðri sátt með þetta mál og að það sé vel gert. Ég tek undir það að mér finnst umræðan hins vegar hafa verið upplýsandi og góð og mér finnst hæstv. ráðherra slá góðan tón varðandi meðferð málsins. Ég held að við þurfum að skoða þetta mjög vel. Ég hef miklar efasemdir, eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson minntist á, og við komum líka að fyrr í umræðunni — ég vil ekki trúa því að við séum að setja nein takmörk á það hvernig aðkoma þingsins getur verið í ferlinu og ég held að ekki þurfi að færa nein sterk rök fyrir því, ég held að það sé augljóst að það sé skynsamlegt. Eins og hæstv. ráðherra og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og fleiri nefndu, og ég tók upp í minni fyrstu ræðu, þá er það þannig, þegar kemur að fjárfestunum, að jafnvel þó að menn ætli sér að gera þetta eins vel og hægt er þá getur það orðið snúið þegar á að velja á milli.

Eftir stendur að það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin ætli að stíga þetta skref. Eftir standa spurningar um hvað það er nákvæmlega sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson er að vísa til þegar hann er að tala um breytingar sem Flokkur fólksins fékk fram. Hann vísar í Landsbankann en það er ekki skýrt hvað þarna er á ferðinni. Það er ekki gott vegna þess að það skiptir máli að við séum með traust og trúverðugleika á fjármálamarkaði og Landsbankinn er banki sem er mikilvægur og það er því brýnt að ekki sé nokkur vafi á því hvað hér sé á ferðinni.

Virðulegi forseti. Ég vil bara nota tækifærið og þakka fyrir umræðuna. Það eru ákveðnar spurningar sem snúa að málinu sem verða afgreiddar í þingnefnd en sömuleiðis eru ræður stjórnarliða þannig að það kallar líka á það að spurningum verði svarað. Því ef þetta er þannig, virðulegi forseti, og hv. þm. Sigurjón Þórðarson verður þá bara að segja það mjög skýrt — ef þetta er engin breyting, ef það er bara þannig að Flokkur fólksins skipti um skoðun aftur, þá á bara að segja það, ef það er málið. Ef þetta eru hins vegar einhverjar breytingar á rekstri Landsbankans sem fólk veit ekki um þá er mjög mikilvægt að það sé upplýst. Þetta er ekkert smámál. Hv. þingmaður verður þá bara að koma og segja það. Ef það er bara þannig að hann missti sig aðeins, ef það voru engar breytingar og þeir eru bara að kyngja þessu, ef þeir eru bara ósammála öllu sem þeir sögðu á síðasta kjörtímabili, ef þetta er þannig, þá á bara að segja það. En hv. þingmaður talaði hér eins og það séu einhverjar breytingar sem ekki hafi verið tilkynnt um. Það er mjög mikilvægt að hv. þingmaður tali skýrt og upplýsi þetta: Eru einhverjar breytingar sem við vitum ekki um eða eru þingmenn Flokks fólksins bara búnir að éta allt ofan í sig og eru bara á móti öllu sem þeir sögðu á síðasta kjörtímabili?