ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er svo gaman við þetta starf að maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt. Ég er búinn að vera hérna í nokkurn tíma og ég hef aldrei áður séð þingmann koma og vera talsmaður annars þingmanns í umræðunni. Þetta er alveg nýtt. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson er talsmaður hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Þetta er held ég alveg nýtt í þingsögunni og ég bara fagna því og öfunda hv. þm. Sigurjón Þórðarson (Gripið fram í: Styðja gott fólk.) af því að fá svona góðan talsmann inn í umræðuna. Þetta er kannski það sem er búið að semja um líka og hefur ekki verið látið vita af, að þingmenn Viðreisnar komi hér og séu talsmenn þingmanna Flokks fólksins. Ég er búinn að starfa lengi með hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni og síðast þegar ég vissi var hann alveg fær um að tala sjálfur, en það er gott að hann sé kominn með talsmann.
Svarið við þessum spurningum: Ég fór ágætlega yfir það í minni ræðu að mér fannst fyrri salan miklu betri en seinni og ég var þeirrar skoðunar í seinni sölunni að við ættum að halda okkur við það fyrirkomulag sem við vorum með áður. Varðandi TM þá nei, mér fannst það vond hugmynd og mér finnst ekki gott þegar ríkið eða ríkisbanki er að auka umsvif sín með þeim hætti.
Svo er ég bara rosalega ánægður að hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, sem er talsmaður hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, finnist svona fallegt að sjá okkur Sjálfstæðismenn í ræðustól. Ég tók því þannig. Ég veit alveg hvaðan það kemur, virðulegur forseti, en ég ætla ekkert að fara í það. Það eru bara ljúfar minningar. En ég get bara tekið undir það með hv. þingmanni þegar hann fór hérna yfir samkeppnisreksturinn og hlutverk ríkisins, við erum sammála því hér. Svo er ég bara spenntur að sjá hvort talsmaðurinn fari aftur í andsvar og hvað komi þá.