ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Mér heyrist að þetta hafi verið mjög stutt tímabil í lífi hv. þm. Sigmars Guðmundssonar sem talsmaður hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar því mér fannst hann bara segja upp í lok ræðunnar. (Gripið fram í.) Ég skil ekkert af hverju, því að mér fannst það fara hv. þingmanni alveg prýðilega að vera talsmaður og ég var ekki að biðja hann um að segja upp.
En ég átta mig ekkert algerlega á því — af því að það er alveg rétt að ég hef tekið þátt í samsteypustjórnum og ég var í samsteypustjórn með Viðreisn og við þurftum að kyngja ýmsu þá; jafnlaunavottun, það var nú meiri hörmungin, [Hlátur í þingsal.] verður ekki mikið verra. Fullkomið rugl, kostar endalaust, skilar engu. (SGuðm: Þú varst á græna takkanum …) Já, já, alveg rétt …
(Forseti (IngÞ): Hv. þingmaður hefur orðið.)
— það var ekki gott, það var ekki gott. Nei, nei, maður er með ýmislegt á samviskunni.
Hins vegar er ég enn þá að bíða eftir því að hv. þm. Sigurjón Þórðarson komi, og hann kemur kannski með talsmanninn með sér, og útskýri nákvæmlega hvað hann átti við því að eftir stendur hvað þar er um að ræða. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi talsmaður hv. þingmanns, (Gripið fram í.) talar um að það eigi að breyta rekstri Landsbankans eitthvað í átt að samfélagsbanka sem hann skilur ekki almennilega út á hvað gengur. Ég veit það ekki, þannig að ég er bara að bíða eftir því að fá að heyra hver lendingin í þessu máli er. Það er stórmál ef stjórnarþingmenn ræða hlutina með þessum hætti í einhverjum hálfkveðnum vísum um einhverjar breytingar á stóru fjármálafyrirtækjunum eins og Landsbankinn er. Eins og ég segi, ef hv. þm. Sigurjón Þórðarson kemur bara og segir: Heyrðu, þetta er allt misskilningur, þú misskildir það allt saman. Þetta er allt saman óbreytt og við bara skiptum algjörlega um skoðun. Allt það sem við sögðum á síðasta kjörtímabili, við erum bara hættir við það — þá er bara mikilvægt að það komi fram.