156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[19:02]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það sem var jákvætt við þessa umræðu og ræðu hv. þingmanns er að núna virðist hann gera sér grein fyrir alvöru málsins, loksins. Þessi umræða sem hefur staðið yfir í nokkrar klukkustundir virðist hafa skilað því að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru að ná jarðtengingu. En það er undarlegt að þegar Sjálfstæðismenn heyra um samfélag og samfélagsbanka þá halda þeir að það sé eitthvað óábyrgt. Það var einmitt flokkurinn sem bjó svo um hnútana með Íbúðalánasjóð, 90% lán, að það var ekki hægt að endurfjármagna lánin með sambærilegum hætti ef þau voru borguð niður. Það varð auðvitað til þess að við erum núna að punga út háum fjárhæðum. Það er eðlilegt að vera með varnagla og treysta eftirlit með þessum stofnunum, því sagan segir, hvort sem það er einkabanki eða samfélagsbanki, að ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst að þá er voðinn vís. Þá er bara voðinn vís. Mér finnst undarlegt þegar rætt er um að verið sé að delera í umræðunni fyrir það eitt að nefna það að reka Landsbankann með hagkvæmum hætti og láta almenning njóta þess. Það er samt jákvætt að heyra að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið jákvætt í það að fara í endurmenntun.