156. löggjafarþing — 15. fundur,  17. mars 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[19:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður svaraði mjög skýrt já eða nei spurningunni, eða ekki. Ég spyr hv. þingmann — hann átti að vísu að spyrja mig en sleppti því nú alveg — af hverju er þetta svona erfitt? Hvað er svona erfitt við að svara því? Á að gera einhverjar breytingar á Landsbankanum eða ekki? Er voða erfitt fyrir Flokk fólksins að segja það ef sú er niðurstaðan? Ég veit það ekki; hv. þingmaður kemur upp aftur og aftur og getur aldrei svarað því. Er allt sem Flokkur fólksins sagði um þessi mál á síðasta kjörtímabili, allt, bara ómerkt? Þeir fóru bara í ríkisstjórn og gleymdu öllum stóru yfirlýsingunum og öllum ræðunum. Er það niðurstaðan? Ég veit það ekki. Mér finnst að almenningur, ég tala nú ekki um kjósendur, eigi rétt á að fá að vita þetta.

Hv. þingmaður þekkir augljóslega mjög lítið til sögu Íbúðalánasjóðs. Að kenna okkur um 90% lánin er náttúrlega súrrealískt. Það var svo sannarlega ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem lofaði því. En það er rétt eins og kom fram hjá ágætum þingmanni að það þurfti að semja um ýmislegt en það voru hins vegar varnaglar sem allir geta skoðað, lesið skýrslur um Íbúðalánasjóð, sem voru ekki nýttir af þeim ráðherrum sem fóru með málið seinna meir. Ég veit ekki hvað á að segja mikið meira. Það er náttúrlega sérfrétt að hv. þingmaður vilji alls ekki segja okkur frá því hvað var samið um og hvað var ekki samið um. Þessi umræða hlýtur að verða tekin aftur. Það kemur að þessu. Það er aldrei að vita nema þetta kjörtímabil verði fjögur ár þannig að það gefast fleiri tækifæri til að spyrja hv. þingmann. Maður bíður spenntur eftir svarinu því að við erum alveg í lausu lofti eftir ræðu hv. þingmanns.