Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í kjördæmaviku á dögunum ferðaðist sú sem hér stendur ásamt hv. þingmönnum Örnu Láru Jónsdóttur og Degi B. Eggertssyni m.a. um Vesturland og Vestfirði. Þar bar á góma eins og víða annars staðar á landinu erfiðleikar við mönnun heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Hér þarf að taka til hendinni og meðal aðgerða sem má beita eru niðurgreiðslur námslána hjá heilbrigðisstarfsfólki sem skortur er á víða um land. Slíkar niðurgreiðslur geta verið hvatning fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að starfa á landsbyggðinni og ekki er vanþörf á. Heimild hefur verið til staðar í mörg ár fyrir slíkri niðurgreiðslu hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og lagði sú sem hér stendur fram fyrirspurn til þáverandi ráðherra heilbrigðismála og til þáverandi háskólamálaráðherra á 154. þingi og kom þá í ljós að ekkert sveitarfélag í samvinnu við atvinnurekanda hafði sótt um úrræðið þrátt fyrir heimild í lögunum og augljósan skort á starfsfólki sem hefur verið viðvarandi um allt land. Nú loksins fengum við fregnir af því að sveitarfélag hafi sótt um í samstarfi við atvinnurekendur en forsenda umsóknar er jafnframt skýrsla Byggðastofnunar um mönnunarvanda. Eins og gefur að skilja vissu of fáir af úrræðinu á sínum tíma og velta má fyrir sér hvort ferlið hafi verið of tyrfið til að úrræðið gæti nýst við að bæta mönnun á heilbrigðisstofnunum um land allt. Það er fagnaðarefni að loksins sé komin hreyfing á hlutina en skoða verður í framhaldinu hvort úrræðið skili sér, hvort þörf sé á einföldun ferlisins og eflingu annarra úrræða sem miða að því að bæta mönnun heilbrigðiskerfisins um allt land.
Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur einsett sér að fjárfesta í innviðum til að efla heilbrigðiskerfið um land allt. Jafnframt leggur ríkisstjórnin áherslu á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Þessu fagna ég og mun beita mér fyrir því hér á þingi og í nefndum á komandi misserum.