156. löggjafarþing — 16. fundur,  18. mars 2025.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Olíuleit á Drekasvæðinu kom óvænt aftur inn í umræðuna í gær þegar meiri hluti bæjarráðs Fjarðabyggðar, sem skipaður er af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, sendi frá sér bókun og beindi því til stjórnvalda að meta að nýju hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu, m.a. í ljósi þess að orkuskipti gengju hægar en gert var ráð fyrir. Bæjarfulltrúi Fjarðalistans, framboðs félagshyggjufólks í Fjarðabyggð, sagði í bókun á fundinum að mikilvægt sé að Ísland tryggi orkuöryggi til framtíðar með stefnumótun sem taki mið af sjálfbærum lausnum, orkuskiptum og langtímahagsmunum samfélagsins. Á þessari vegferð er einmitt ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Við ætlum að virkja kosti innan rammaáætlunar. Við horfum á grænar leiðir, til að mynda vatnsaflsvirkjanir og jarðhita. Við ætlum að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefur í orkumálum. Við ætlum líka að bæta orkunýtni og tryggja orkuöryggi, styðja við orkuskipti og verðmætasköpun um allt land. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur líka kynnt átak í jarðhitaleit á köldum svæðum.

Virðulegi forseti. Vert er að taka fram að norsk og kínversk olíufélög skiluðu inn leyfum sínum á Drekasvæðinu árið 2018, töldu að of litlar líkur væru á að arðbærar olíulindir fyndust til að hægt væri að réttlæta áframhaldandi leit. Ég veit ekki til þess að það hafi breyst. Auðvitað eru það góð og gild markmið að hætta að flytja inn olíu að utan með tilheyrandi gjaldeyriskostnaði en það er miklu nærtækara að skipta olíunotkuninni út fyrir innlenda, sjálfbæra orku. Það ætlum við að gera.