jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir andsvarið og gaman að sjá að Viðreisn heldur uppteknum hætti við að verja þetta kerfi sitt með kjafti og klóm. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi það, eins og ég sagði í framsögu minni, að markmiðið hafi upphaflega verið göfugt en að kerfið geti síðan þarfnast nánari skoðunar og að ég sé að taka þátt í því með þessu uppleggi mínu. Viðreisn reynir hér að þvo hendur sínar af jafnlaunavottuninni með því að eigna hana fyrrum formanni Sjálfstæðisflokksins og það er í besta falli hlægilegt. Það þarf ekki annað en smágúgl til að sjá hversu hreykin Viðreisn var af þessu fyrsta og jafnvel eina þingmáli sínu þann stutta tíma sem Viðreisn sat í fyrsta skipti í ríkisstjórn; það var Facebook og það var Instagram og það voru viðtöl, og gott og vel. En eins og hv. þingmaður bendir á í andsvari sínu eru nokkur ár liðin frá þessum tíma og því langar mig að biðja hv. þingmann um að rifja frekar upp nýleg ummæli hv. þingmanna Viðreisnar, bara nokkurra vikna eða mánaða gömul, þar sem er einmitt verið að verja þetta mál með kjafti og klóm, m.a. eftir að sú sem hér stendur hefur verið að taka þetta ítrekað upp í þinginu og í fjölmiðlum. Það er alltaf hægt að treysta á það að einhverjir hv. Viðreisnarþingmenn mæti á svæðið eins og hv. þingmaður sjálfur og verji kerfið. Mig langar að spyrja hv. þingmann á móti: Hver hafa viðbrögð Viðreisnar t.d. verið við þessu svari sem var lagt fram af forsætisráðuneytinu á 153. löggjafarþingi og sú er hér stendur óskaði eftir í þinginu? Hver voru viðbrögðin þá?