jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og það er auðvitað þannig að Viðreisn tók þátt í að koma þessu máli á legg. ( DME: Lagði þetta fram.) — Lagði þetta fram og það var auðvitað gert í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum eins og menn muna. Svo að ég svari nú kannski spurningunum sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir svaraði ekki þá var ég að vitna til tveggja Sjálfstæðisþingmanna sem ræddu þetta mál á sínum tíma þegar það var samþykkt og það voru hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, sem er með okkur í þessari umræðu, eins og við sjáum, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem líka lét þessi orð falla. Þetta er auðvitað bara nefnt sem dæmi um að þarna stóð þingheimur einróma að því að reyna að lyfta upp jafnréttismálum með ákveðnu verklagi sem síðan hefur komist ágætisreynsla á. Auðvitað er það þannig að það er hægt að laga margt í þessu. Ég hef heyrt sögur af því að sumt hafi reynst fyrirtækjunum íþyngjandi, það geti farið eftir því hversu fjölmenn þau eru. Mörg fyrirtæki hafa glaðst yfir því að geta sett jafnréttismálin með ákveðnum hætti á dagskrá. En það stendur ekkert á okkur að sníða agnúa af einhverju fyrirkomulagi sem samþykkt var af 49 þingmönnum á sínum tíma. Og þeir þingmenn sem samþykktu þetta, ég skal bara telja hér upp nokkur nöfn, voru hv. þingmenn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Brynjar Níelsson, Hildur Sverrisdóttir, Jón Gunnarsson, Karen Elísabet Halldórsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Páll Magnússon, Sigríður Andersen, Teitur Björn Einarsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Vilhjálmur Bjarnason og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Þetta voru um 17 þingmenn, að mér telst til, sem samþykktu jafnlaunavottunina, að fara af stað með það mál.
Við skulum ekki vera með einhvern ábyrgðarflótta hér í þessu. Sníðum frekar agnúa af ef þarf að gera það, lögum þar sem þarf að laga. Ég lít svo á að þetta mál hv. þingmanns sé innlegg inn í þá umræðu en við skulum ekki hlaupast frá ábyrgð okkar í málum. Sjálfstæðisflokkurinn var einhuga um að greiða atkvæði og vera á græna takkanum (Forseti hringir.) þegar þetta mál var samþykkt. Þannig var það og við skulum ekki vera að klína ábyrgðinni einskorað á einn flokk (Forseti hringir.) þegar flokkur hv. þingmanns tók þátt í að samþykkja þetta mál.